Hagnýtar upplýsingar

Nemendur í sal 

 

Víkurskóli er grunnskóli við Hamravík í Víkurhverfi í Reykjavík sem tók til starfa haustið 2001.


Nemendafjöldi veturinn 2009-2010 er 335 nemendur.
Fyrsta skóflustungan var tekin 3.apríl árið 2000. Fyrsti áfangi húsnæðis Víkurskóla var tekinn í notkun skólaárið, 2001 –2002, 11 almennar stofur auk hópherbergis og sérkennslustofu.

Haustið 2002 bættust við sérgreinastofur skólans, þ.e. smíðastofa, myndmenntastofa, textílstofa, heimilisfræðistofa, raungreinastofa og íþróttahús.

Víkurskóli varð fullbúinn haustið 2003 með 16 almennar kennslustofur og góða aðstöðu til sérgreinakennslu í þar til gerðum stofum.

Í hjarta hússins er tölvuver og bókasafn. Þar er einnig mötuneyti, salur fyrir félagsstarf nemenda og aðstaða fyrir frístundaheimilið. Við þetta svæði er einnig stjórnun og vinnuaðstaða fyrir starfsmenn skólans.

 

Skólinn var formlega vígður og afhentur af borgaryfirvöldum þann 4.desember 2003.