Stefna Víkurskóla

 Krakkar í Víkurskóla

Leiðarljós Víkurskóla eru virðing, virkni og velvild

Í Víkurskóla er unnið samkvæmt stefnu fræðsluyfirvalda um skóla án aðgreiningar. Lögð er áhersla á

  • sveigjanlega og fjölbreytta kennsluhætti þar sem stuðst er við upplýsinga- og samskiptatækni.
  • einstaklings / hópamiðað nám.
  • samvinnu.
  • sjálfstæð verkefni, sköpun og frumkvæði.
  • heilbrigða lífshætti.
Í sérkennslustefnu skólans er lögð áhersla á fyrirbyggjandi starf á yngsta stigi, námstækni á miðstigi og ábyrgð nemenda á eigin námi á unglingastigi.
Skólaárið í Víkurskóla hefst og lýkur með útikennslu. Þá fara nemendur, ásamt kennurum, í lengri og styttri vettvangsferðir sem tengjast ýmsum námsþáttum og falla undir markmið Aðalnámskrár grunnskóla.
Helstu markmið með þessum dögum eru:
  • að nýta fjölbreytt umhverfi skólans til að auðga kennsluna og tengja hana samfélagi og náttúru.
  • að nemendur kynnist vel nánasta umhverfi sínu og láti sér annt um það.
  • að efla virðingu nemenda fyrir náttúrunni og umhverfi sínu.
  • að leggja áherslu á útiveru nemenda og stuðla þannig að jákvæðri sjálfsmynd þeirra.

Leiðir til þess að framkvæma stefnu skólans

Virðing
Lögð er áhersla á virðingu í víðtækum skilningi. Sjálfsvirðingu nemenda, virðingu fyrir öðrum nemendum og starfsfólki, virðingu fyrir eigin eigum og annara. Virðingu fyrir fólki með mismunandi bakgrunn og skoðanir.
Virðingu fyrir náttúrunni, nemendur læri að meta og þekkja íslenska náttúru þannig að þeir kunni að njóta hennar og nýta á skynsamlegan hátt.
Virkni
Lögð er áhersla á ábyrgð nemenda á eigin námi m.a. með sveigjanlegum kennsluháttum sem taka mið af mismunandi hæfni nemenda. Lögð er áhersla á að vinna með sterkar hliðar nemenda og styrkja þannig sjálfsmynd og sjálfstraust þeirra.

Áhersla er á samvinnu og samhjálp nemenda. Kennslan fer fram í misstórum hópum allt eftir verkefnum hverju sinni. Vinnusvæði nemenda á að bjóða bæði upp á einstaklings- og hópavinnu.
Samþætting námsgreina, þ.e. námsgreinar renna saman að nokkru og unnið er út frá ákveðnum þemum. Vinna fer fram innan og utan skólans.
Nemendur fái þjálfun í að leita að upplýsingum í bókum, í umhverfinu, af neti o.s.frv. og læri að skoða allar upplýsingar af gagnrýni og geti þannig flokkað þær og metið.
Gengið er út frá kenningum Howard Garnder sem leggja áherslu á mismunandi hæfni nemenda. Fjölbreytileika einstaklinganna er hampað og viðurkennt að nemendur búa yfir margvíslegri færni. Einnig er gengið út frá hugsmíðahyggjunni og því er lögð áhersla á að byggja á fyrri þekkingu nemandans og gera hann virkan þátttakanda í eigin námi.

Kennarar vinna saman að því að skipuleggja hvetjandi námsumhverfi og aðstæður. Þeir eru ekki lengur einangraðir í sínum stofum og þeirra hlutverk er ekki eingöngu að koma ákveðinni þekkingu til skila til nemenda heldur frekar að hvetja nemendur til dáða með því að vekja áhuga eða forvitni á viðfangefninu. Kennarar skapa ramma utan um vinnu nemenda í hvetjandi umhverfi og eru nemendum til ráðgjafar / handleiðslu við lausn hinna ýmsu viðfangsefna.
Lögð er áhersla á samvinnu kennara og teymisvinnu þannig að kennarar beri sameiginlega ábyrgð á kennslu bekkja og árganga. Með samvinnu gefst kennurum kostur á að njóta sín betur í starfi. Þeir geta samnýtt mismunandi hæfni og þekkingu. Þannig gefst kennurum kostur á að leysa hin ýmsu mál sem upp koma sameiginlega og sjá með því móti fleiri lausnir.
Í Víkurskóla er skapandi skólastarf. Sköpunarkraftur og hugmyndaflug nemenda er virkjað. Nemendur fá þjálfun til þess að takast á við ýmis verkefni þar sem reynir á hæfni til þess að leysa vandamál og nota skapandi og gagnrýna hugsun.
Umsjónarkennarinn gegnir lykilhlutverki. Hann byrjar daginn á því að fara yfir verkefni dagsins með nemendum sínum og nemendur ljúka vinnudeginum hjá umsjónarkennaranum þar sem farið er yfir vinnu dagsins og lögð eru drög að næsta degi.

Velvild
Lögð er áhersla á elskulegt viðmót í Víkurskóla. Allir sem til okkar leita eiga að finna sig velkomna. Andrúmsloftið á að vera hvetjandi og hlúa að velferð einstaklinganna sem mynda skólasamfélagið.
Lögð er áhersla á tengsl við umhverfið eða grenndarsamfélagið.
Mikilvægt er að móta og styðja fjölbreytt félagsstarf í skólanum. Skólinn á vera menningarmiðstöð hverfisins.

Til þess að slíkt gangi eftir þurfum við að ná árangursríkum samskiptum við þá aðila sem tengjast skólanum svo sem Foreldrafélag Víkurskóla, ÍTR , Miðgarð, Ungmennafélagið Fjölnir o.fl.
Víkurskóli er staðsettur í nánd við fjölbreytta náttúru. Lögð er áhersla á kennslu tengda náttúrunni. Umhverfismennt er sjálfsagður þáttur í náttúrufræðikennslu skólans. Víkurskóli hefur hlotið Grænfána Landverndar fyrir umhverfisstefnu sína og er því Grænfánaskóli.
Við hönnun Víkurskóla var unnið út frá þeirri hugmynd að húsnæðið væri þannig úr garði gert að nemendum og starfsfólki ætti að líða vel þar. Það væri heimilislegt frekar en stofnanalegt.
Sérkennslustefna Víkurskóla – skóli án aðgreiningar
Í Víkurskóla er unnið eftir hugmyndafræði um skóla án aðgreiningar sbr. stefnu fræðsluyfirvalda í Reykjavík, grunnskólalögum og Aðalnámskrá grunnskóla. Leiðir að því markmiði felast m.a. í einstaklings / hópamiðuðu námi, sveigjanlegum kennsluháttum, blönduðum námshópum, samstarfi kennara, fjölbreyttum og sveigjanlegum sérúrræðum og markvissum stuðningi við kennara.

Þegar upp kemur vandi hjá einstökum nemendum eða námshópum er lögð áhersla á að vandinn sé rétt skilgreindur, greindur og úrræði valin í samræmi við niðurstöður greiningar.

Á yngsta stigi, 1. – 4. bekk, er lögð áhersla á fyrirbyggjandi starf með markvissri mál- og hreyfiþjálfun sem fram fer í samstarfi umsjónarkennara, íþróttakennara, tónmenntakennara og sérkennara eða námsráðgjafa. Unnið er markvisst að því að finna og vinna með þau börn sem eru í áhættuhópi vegna lestrarerfiðleika og viðvarandi hegðunarerfiðleika.

Á miðstigi, 5. – 7. bekk, er m.a. unnið markvisst með námstækni og að kenna nemendum með sértækan námsvanda aðrar leiðir í námi. Nemandi með alvarlega lestrarerfiðleika þjálfast þannig í að nota ýmis hjálpartæki, s.s. hljóðbækur og tölvur þannig að hann nái sínum námsmarkmiðum eftir öðrum leiðum en þorri nemenda.

Á unglingastigi, 8. – 10. bekk, er lögð sérstök áhersla á námstækni. Að nemendur geri sér grein fyrir sterkum og veikum hliðum sínum í námi og þeir velji sér námsleiðir í samræmi við það. Með þessu eflist ábyrgð nemenda á eigin námi.