| Forskóli |
|
Í Víkurskóla er starfandi forskóladeild. Það er samstarfsverkefni leikskólans Hamra og Víkurskóla. Elstu nemendur af Hömrum koma tvisvar í viku í Víkurskóla og vinna þemaverkefni út frá Söguaðferðinni sem er skosk kennsluaðferð. Leikskólakennarar og grunnskólakennari vinna saman með elstu börnunum. Vetrinum er skipt upp í 4 þemu. Sett er upp aðstaða (leiksvið) í takt við hvert þema. Leikurinn er undirstaða forskólanámsins. Í þemanu verða nemendur þátttakendur í sögu. Í gegnum hlutverkaleik skapa þeir sögu, vinna með tölur, bókstafi, orð o.s.frv. Við lok hvers þema er haldin kynning þar sem foreldrum/ forráðamönnum er boðið að koma á. Verkefnið hefur fengið úthlutað styrk úr þróunarstjóði Menntasviðs.
|