Bekkjarkvöld 1.-4.bekkjar
1.-4.bekkur var saman á bekkjarkvöldi á dögunum. Það var hrekkjavökuþema í partýinu, borðaðar flatbökur og drukkinn djús sem að ýmist var draugapiss eða blóð. Nemendur af unglingastigi komu og gerðu andlitsmálningu sem að vakti mikla lukku. Leikirnir sem að farið var í voru í anda hrekkjavökunnar og kepptust bekkirnir um að gera múmíur með salernispappír.

