Grunnskólaganga hafin hjá 1.bekk.
Nýir nemendur í 1. bekk hafa nú tekið sín fyrstu skref í grunnskólagöngu sinni. Fyrstu dagarnir hafa farið í að kynnast skólanum og öllu sem fylgir að byrja í skóla.
Það er stórt skref og hverju barni eftirminnilegt að hefja skólagöngu og hafa nemendur staðið sig með mikilli prýði.






