Víkurskóli sími : 487-1242 netfang : vikurskoli@vikurskoli.is / Skólabílstjórar Ingi Már : 894-9422 – Hjördís Rut: 861-0294
Heimilsfang: Mánabraut 3 | Pósthúmer: 870 Vík | Símanúmar: 487 1242 | Netfang: vikurskoli@vikurskoli.is
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 487-1242 eða á netfangið vikurskoli@vikurskoli.is
Útivistarval
/0 Comments/in frettir /by VikurskoliNemendur í útivistarvali á unglingastigi hafa í haust tekist á við ýmsar áskoranir eins og að klífa fjöll, kveikja eld og grilla pylsur í hagléli. Jafnframt hafa krakkarnir fræðst um ýmislegt sem tengist því að stunda útivist. Við búum svo vel í nærumhverfi Víkurskóla að hafa aðgang að fallegum gönguleiðum og stöðum til að skoða. Hér eru nokkrar myndir sem Magga Steina kennari hópsins, tók af krökkunum.
Fleiri myndir.
Alþjóðlegi göngum í skólann dagurinn 7. október
/0 Comments/in frettir /by VikurskoliHvatningarverkefninu Göngum í skólann lauk formlega þann 7. október sl. á alþjóðlega ,,Göngum í skólann deginum’’. Krakkarnir í Víkurskóla voru almennt mjög dugleg í verkefninu og svo var auka hreyfingu bætt inn í skólavikuna til að koma til móts við þá sem eru í skólaakstri og ekki hafa tækifæri til að ganga í skólann. Hér er mynd af honum Jóhanni nemanda í 7. bekk sem hélt upp á alþjóðlega göngum í skólann daginn með því að hjóla í skólann hvorki meira né minna en 10 kílómetra! Vel gert hjá honum.
Stærðfræðifjör í 3.-7. bekk.
/0 Comments/in frettir /by VikurskoliReglulega hittast nemendur þvert á aldur og námshópa og vinna skapandi verkefni í stærðfræði. Hér gefur að líta myndir frá síðasta stærðfræðifjöri.
Fleiri myndir
Dagur íslenskrar náttúru
/0 Comments/in frettir /by VikurskoliÁ degi íslenskrar náttúru fóru nemendur, 1. og 2. bekkjar og gerðu náttúrulistaverk í Víkurfjöru. Á leiðinni fræddust nemendur um haustið, örnefni og það sem fyrir augu bar á leiðinni, síðan vöru sköpuð mismunandi listaverk, allt eftir innblæstri nemenda. Þau söktu sér í listsköpunina. Þegar heim var komið töluðum við um Ómar Ragnarsson, sem dagurinn er tileinkaður, en hann átti 80 ára afmæli. Nemendur 3. – 4. bekkjar fóru í útikennslustofu skólans á Syngjandanum, sögðu sögur, fræddust um Ómar og hans mikla starf í þágu íslenskrar náttúru, lagt var á ráðin um næstu útikennsluferð, sungin nokkur lög og farið í frispígolf. Þetta var góður og eftirminnilegur dagur.
Fleiri Myndir
Heimsókn 8.-9. bekkjar í Kötlusetur
/0 Comments/in frettir /by VikurskoliNemendur í 8.-9. bekk læra þessa dagana undir stjórn Möggu Steinu samfélagsfræðikennara þeirra um steintegundir á Íslandi og jarðvætti í Kötlu jarðvangi. Liður í þessari fræðslu var heimsókn í fræðasetrið okkar Kötlusetur þar sem Vala og Jóhannes tóku á móti krökkunum og þau fengu verklega fræðslu í að greina steintegundir.
Fleiri myndir