Skólárið 2023-2024 voru unnar samræmdar reglur um skólasókn fyrir skólana á starfssvæði, Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur- Skaftafellssýslu. Halldóra Helgadóttir teymisstjóri skólaþjónustu hélt utan um vinnuna í samstarfi við skólastjórnendur á svæðinu. Reglurnar hafa verið lagðar fyrir í Skólaráði Víkurskóla og kynntar á fundi Fjölskyldu-frístunda-, og menningarráðs Mýrdalshrepps. Frá og með næsta skólaári 2024-2025 verður unnið eftir þessum reglum um skólasókn í Víkurskóla.
Hér er hægt að sjá reglurnar sem eru í pdf Reglur um skólasókn