Röddin, upplestrarkeppni 7. bekkinga

Skólakeppni Raddarinnar, upplestarkeppni 7. bekkinga fór fram 9. mars. Markmið keppninnar er að þjálfa vandaðan og áheyrilegan upplestur. Valdir voru keppendur til að taka þátt í héraðskeppni Raddarinnar sem verður haldin að þessu sinni í okkar heimabyggð 21. apríl n.k. Það voru þær Harpa Sóllilja Ólafsdóttir og Michalina Rutkowska sem voru hlutskarpastar og Gréta Björk Einarsdóttir verður til vara.





