Skólaslit Víkurskóla

Víkurskóla var slitið með formlegum hætti 2. júní sl. Við skólaslit voru 66 nemendur skráðir í skólann. Tveir starfsmenn létu af störfum, þær Erla Þórey Ólafsdóttir kennari og Anna Birna Björnsdóttir stuðningsfulltrúi, Víkurskóli þakkar þeim fyrir góð störf og ánægjulega samfylgd.. Að þessu sinni útskrifuðust 7 nemendur úr 10. bekk, Víkurskóli óskar þeim innilega til hamingju og bjartrar framtíðar. Hér má sjá mynd af þessum glæsilega hópi.

Frá vinstri; Íris Anna Orradóttir, Sóley Karitas Sveinsdóttir, Ólöf Ósk Bjarnadóttir, Bjarni Steinn Vigfússon, Kristín Gyða Einarsdóttir, Dalrós Jóna Guðnadóttir  og Aníta Ósk Reynisdóttir. Á myndinni er líka umsjónarkennari hópsins Victoria Reynholdsdóttir.

Heimilsfang: Mánabraut 3 |  Pósthúmer: 870 Vík | Símanúmar: 487 1242 | Netfang: vikurskoli@vikurskoli.is

Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 487-1242 eða á netfangið vikurskoli@vikurskoli.is