Drangamix
Drangamix er heiti á þverfaglegu námi sem unnið er í 1.-6. bekk. Við veljum ákveðna þemu sem við vinnum með á fjölbreyttan hátt. Drangamix verkefnin eru mis stór. Þau geta verið allt frá fáeinum tímum upp í nokkrar vikur, eru allskonar og unnin eftir ólíkum leiðum. Fyrsta verkefnið sem við erum að vinna með er átthagafræði þar sem við fræðumst m.a. um náttúru, gróðursvæði og fugla í Mýrdalshreppi. Þetta eru skemmtileg viðfangsefni þar sem allir fá að blómstra á sínum forsendum.