Erasmus+ Verkefni Víkurskóla 2024 – 2025
Eitt markmiðanna þessa skólaárs innan Erasmus+ verkefnisins var að efla tungumálakunnáttu nemenda í ensku og þá sérstaklega í skapandi skrifum. Þess vegna var stofnað til samstarfs við menntaskólann I Liceum Ogólnokształcące im. Juliusza Słowackiego w Przemyślu, sem er í bænum Przemysl í suðaustur Póllandi. Þeir nemendur sem við vorum í samstarfi við þar eru allir á tungumálabraut og kennarar þeirra eru enskukennarar. Lagt var af stað í febrúar í 10 daga ferð til Póllands.
Það var margt á dagskrá í þessari ferð enda langaði okkur að gera sem mest úr ferðinni og meðal annars tengja við það sem við vorum búin að læra í sögukennslu síðasta vetur. Þess vegna var ákveðið að heimsækja hina fallegu borg Kraków þar sem gestgjafar okkar fóru með okkur í sögulega skoðunarferð í svokallað gyðingahverfi þar sem gyðingar héldu sig fyrir seinni heimsstyrjöld. Einnig var farið um hverfið þar sem Schindler tókst að bjarga hundruðum pólskra gyðinga undan útrýmingu með því að gefa þeim vinnu í verksmiðjum sínum. Í Kraków fórum við einnig í Home Army Museum þar sem sagt var frá hvernig pólski leyniherinn barðist á móti nasistum og tókst að byggja upp stærstu andspyrnuhreyfingu Evrópu í seinni heimsstyrjöld. Við skoðuðum einnig þar stóran markað, kastala og dómkirkju Kraków.
Vel í Przemysl fylgdum við gestgjöfum okkar í leik og starfi. Í skólanum unnu nemendur ýmiskonar verkefni til þess að kynnast hvert öðru og menningu hvers annars. Það var farið í ratleiki, hóparæður, hópaverkefni og fleira. Nemendur fengu líka að spreyta sig í alls konar öðrum verkefnum, til dæmis fengu þeir að fara á skauta og einnig fengu þeir að prófa að gera pólska pierogis. Sögukennslunni hélt áfram og var farið í tveimur kastölum og þremur söfnum í bænum. Við fengum einnig að hitta borgarstjórann (president) fyrir svæðið og gat hann frætt okkur í stórum dráttum um það hvernig bæjarstjórn starfar og t.d. hvernig þau hafa unnið með því að taka á móti flóttamönnum frá Úkraínu.
Heimsókninni lauk svo á að við eyddum degi í Auschwitz – Birkenau safninu þar sem var farið í leiðsagða ferð um vinnu- og útrýmingarbúðirnar. Heimsóknin var afar fróðleg og átakanleg.
Í maí komu svo pólsku nemendurnir og kennarar þeirra til okkar í vikudvöl og lögðum við allt okkar í að taka vel á móti þeim. Við byrjuðum á að fara með gestum okkar í Fly over Iceland og Perluna. Við unnum ýmis verkefni í skólanum en einnig tóku Eva Dögg og Þorbjörg á móti okkur í vinnustofunni í Garðakoti og fengu nemendur þar að hanna sinn eiginn bolla og taupoka. Alexandra tók á móti þeim í tónskólanum þar sem hún sagði þeim frá starfinu sem þar fer fram og voru bæði nemendur og kennarar mjög hrifnir af því sem hún kynnti fyrir þeim. Fyrir utan skólann var farið og gert ýmislegt annað svo sem að ganga upp við Skógafoss, fjallgöngur, fjöruferðir og náttúrulega farið í Zipline. Heimsóknin var mjög vel heppnuð og stóðu nemendur sig frábærlega í því að taka vel á móti gestunum okkar, enda fóru þeir alsælir heim eftir heimsóknina. Þetta hefur verið mjög lærdómsríkt ár og erum við mjög þakklát fyrir að hafa fengið þetta tækifæri til að taka þátt í alþjóðlegu samstarfi með þessum hætti.
Erum spennt að hefja nýtt verkefni næsta vetur og er það strax farið af stað….
Victoria Reinholdsdóttir, Umsjónarkennari