Þjóðlegir dagar og dansvika
Dagana 22.-28. janúar voru haldnir þjóðlegir dagar í Víkurskóla. Nemendur Víkurskóla unnu sameiginlegt listaverk í holi skólans þar sem fram kom þeirra túlkun á Þorraþrælnum. 1.-3. bekkur túlkaðu veturinn, kuldann og veðrið, 4.-6. bekkur túlkaði persónur þorraþrælsins, samvinnu, erfiði, húsakynni og mat. Unglingadeildin kom svo með tengingu við samtímann og hver þorraþrællinn væri mögulega í dag.
Hið árlega þorrablót fór svo fram með þorramat, vísubotnakeppni, flutningi annáls og lauk svo með félagsvist og ólsen-ólsen keppni.
Sigurvegari ólsen-ólsen keppninnar var Edith í 3.bekk.
Michalina í 7. bekk bar sigur út býtum í félagsvistinni.
Fyndnasta botninn átti Laufey í 4. bekk og besta botninn átti Sigurgeir Máni í 10. bekk.
Í þessari sömu viku var einnig dansvika sem lauk að venju með opinni dansæfingu þar sem foreldrum/forráðamönnum var boðið að koma og horfa á. 





