Heimsókn á Hjallatún
Þriðjudaginn 21. apríl fóru nemendur í 7. og 8. bekk í heimsókn á Hjallatún. Nemendur spiluðu ólsen ólsen og félagsvist við heimilisfólk og svo var þeim boðið upp á vöfflur. Heimsóknin gekk glimrandi vel og auðvitað stóðu krakkarnir sig með prýði eins og alltaf.






