Víkurskóli innleiðir kennsluhætti Íslenskuskólans

Kennarar frá Víkurskóla hafa sótt námskeið um kennsluhætti Íslenskuskólans og hafið innleiðingu þeirra í skólanum. Markmiðið er að efla markvissa orðaforðakennslu í íslensku fyrir nemendur sem læra íslensku sem annað tungumál.
Íslenskuskólinn afhenti Víkurskóla sérstaka Íslenskuskólamöppu sem inniheldur myndræn orðaforðaspjöld, fjölbreytt kennsluefni og leiðbeiningar fyrir kennara. Efnið styður við orðaforðakennslu þar sem lögð er áhersla á endurtekningu orða, samræður, málfræði, ritun og virkni nemenda til að festa orðaforða í minni. Markmiðið með Íslenskuskólanum er að nemendur bæti námsárangur sinn í öðrum námsgreinum með auknum orðaforða.
Með innleiðingunni tekur Víkurskóli mikilvægt skref í að styrkja íslenskukunnáttu barna með íslensku sem annað tungumál.
Íslenskuskólinn á rætur sínar að rekja í verkefni sem Ragnheiður Gísladóttir kennari við Grunnskólann á Hellu þróaði og innleiddi þar. Verkefnið fékk Menntaverðlaun Suðurlands nú fyrr á þessu ári.
Á myndinni má sjá Ragnheiði ásamt Þorgerði Hlín og Salóme kennurum Víkurskóla





