Ferð á Reyki

Dagana 15.-19. febrúar fóru nemendur 6. og 7. bekkjar, ásamt Sif, Þuríði, Áslaugu og Espen, í skólaferðalag á Reyki. Lagt var af stað á sunnudegi og heimkoma á fimmtudagskvöldi. Allan tímann var mjög kalt en virkilega fallegt og gott veður.

Krakkarnir leystu ýmis verkefni sem ýmist sneru að því að kynnast öðrum og efla samvinnu vináttu og sjálfstaust, eða kynnast nærumhverfinu. Sem dæmi má nefna leiklistarsmiðju o

g hópeflisleiki. Auk þess fóru nemendur í göngutúr um svæðið og komu við á Byggðasafninu þar sem þau fóru í ratleik og lærðu alls konar fróðleik um hákarla. Auk alls þessa var kvöldvaka, sundlaugarpartý, ball og tískukeppni, en þess má geta að það voru nemendur úr Víkurskóla sem unnu tískukeppnina að þessu sinni.

Virkilega vel heppnuð ferð í alla staði og allir komu ánægðir heim.

Heimilsfang: Mánabraut 3 |  Pósthúmer: 870 Vík | Símanúmar: 487 1242 | Netfang: vikurskoli@vikurskoli.is

Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 487-1242 eða á netfangið vikurskoli@vikurskoli.is