Foreldrakynning á unglingastigi

Mánudaginn 26. maí buðu nemendur á unglingastigi foreldrum sínum að koma og sjá brot af vinnu vetrarins. Nemendur úr 9.-10.b kynntu Erasmus+ verkefnið og sögðu frá ferðalagi sínu til Póllands á dögunum og hvernig þau tóku á móti pólskum nemendum. Einnig sýndu nemendur myndbönd sem þeir höfðu unnið upp úr Gunnlaugs sögu Ormstungu og Hrafnkels sögu Freysgoða, sem og myndir og myndbönd af tilraunum sem þau unnu í eðlis- og efnafræði. Foreldrar fjölmenntu á kynninguna og áttum við góða stund saman.

Heimilsfang: Mánabraut 3 |  Pósthúmer: 870 Vík | Símanúmar: 487 1242 | Netfang: vikurskoli@vikurskoli.is

Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 487-1242 eða á netfangið vikurskoli@vikurskoli.is