Heimsók til Kirkjubæjaklausturs

Við í 4.–6. bekk fórum í skemmtilega ferð til Kirkjubæjarklausturs á dögunum þar sem við hittum jafnaldra okkar í Kirkjubæjarskóla. Þau höfðu skipulagt skemmtilega dagskrá þar sem við unnum m.a. með uppáhaldsbækurnar okkar, bjuggum til furðudýr og gerðum friðarmerki á dulmáli. Í lokin fórum við í skemmtilega og ævintýralega ferð um skóginn.
Þetta var mjög skemmtilegur dagur þar sem við lærðum nýtt, prófuðum ýmislegt og áttum góðar stundir saman.





