Alþjóðadagur gegn kynþáttamisrétti var 21.mars síðastliðin. Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti fór fram 16.-23. mars og voru grunnskólar og félagsmiðstöðvar á landinu öll hvött til að taka þátt. Víkurskóli tók höndum saman og myndaði keðju á skólalóðinni og sýndi þannig samstöðu með margbreytileika. Við tókum einnig þátt með samtali við nemendur um rasisma, beinan og óbeinan, og mikilvægi virkrar samstöðu.
http://vikurskoli.is/wp-content/uploads/2019/03/vikurskoli-logo1-2.jpg00Vikurskolihttp://vikurskoli.is/wp-content/uploads/2019/03/vikurskoli-logo1-2.jpgVikurskoli2025-03-25 08:37:552025-03-25 08:58:45Hönd í hönd
Þann 11.2 ár hvert heldur Neyðarlínan upp á 112 daginn. Dagurinn er til þess að minna landsmenn, ekki síst börn og unglinga, á númerið sem allir þurfa að kunna í neyð.
Viðbragðsaðilar í Mýrdalshreppi létu sitt ekki eftir liggja, en slökkvilið, sjúkraflutningamenn, lögregla og björgunarsveit mættu og sýndu hin ýmsu tæki.
Nemendur fengu færi á að skoða dótið, setjast inn í bílana, kveikja á sírenum og alls konar skemmtilegt.
Við þökkum viðbragðsaðilunum kærlega fyrir komuna.
Á dögunum voru haldnir þjóðlegir dagar, en þeir eru orðnir að árlegum viðburði hjá okkur hér í Víkurskóla. Þá er unnið með ýmislegt sem tengist íslenskum hefðum, t.d. þjóðsögur, lopapeysumynstur, hjátrú og kveðskap. Þjóðlegum dögum lauk svo með hinu árlega þorrablóti Víkurskóla sem fór fram með hefðbundnu sniði. Nemendur og starfsfólk nutu þess að borða […]
http://vikurskoli.is/wp-content/uploads/2019/03/vikurskoli-logo1-2.jpg00Vikurskolihttp://vikurskoli.is/wp-content/uploads/2019/03/vikurskoli-logo1-2.jpgVikurskoli2025-02-11 12:56:172025-02-11 12:57:18Þjóðlegir dagar og þorrablót
http://vikurskoli.is/wp-content/uploads/2019/03/vikurskoli-logo1-2.jpg00Vikurskolihttp://vikurskoli.is/wp-content/uploads/2019/03/vikurskoli-logo1-2.jpgVikurskoli2025-01-22 16:24:432025-01-22 16:24:58Þjóðlegir dagar
Skólabókasafnið okkar hefur aldeilis tekið stakkaskiptum í vetur undir stjórn Lisu Kaplon bókasafnsfræðings. Undir hennar stjórn var mjög skemmtilegt lestrarhvatningarverkefni á aðventunni. Í næstu viku fer af stað lestrarátak fyrir vorönn sem er samstarfsverkefni Lisu og Editar listakennara og nemenda í 4.-6. bekk. Lestrarátakið kalla þær Lestrartréð. Við hvetjum foreldra/forráðamenn til að kíkja við á bókasafninu.
Aðventan hefur liðið hratt hjá okkur í Víkurskóla. Margir skemmtilegi,r litlir viðburðir til þess að lita tilveruna. Vasaljósaferð og leikir á Syngjandanum, heimsókn í Víkurkirju og söngstundir með Brian Haroldsson. Við höfum líka fengið gesti í húsið, Slökkviliðið kom í heimsókn til 3.-4. bekkjar og svo má ekki gleyma stórskemmtilegri heimsókn Sævars Helga Bragasonar rithöfundar og stjörnuskoðunarsérfræðíngs. Hér fylgir með mynd af nemendum í 1.-6. bekk sem heimsóttu íbúa á Hjallatúni og sungu af hjartans lyst fyrir þá. Aðventan er tími til að gleðjast og gleðja aðra. Nemendur eru nú að keppast við að undirbúa Litlu-jólin sem verða þriðjudaginn 17. desember n.k.
http://vikurskoli.is/wp-content/uploads/2019/03/vikurskoli-logo1-2.jpg00Vikurskolihttp://vikurskoli.is/wp-content/uploads/2019/03/vikurskoli-logo1-2.jpgVikurskoli2024-12-13 13:36:422024-12-13 13:36:57Aðventan í Víkurskóla
Það styttist í jólahátíðina. Í desember gerum við eitt og annað til að brjóta upp hversdaginn í aðdraganda jólanna. Hér gefur að líta það helsta sem verður á dagskránni hjá okkur í Víkurskóla.
Hönd í hönd
/by VikurskoliAlþjóðadagur gegn kynþáttamisrétti var 21.mars síðastliðin. Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti fór fram 16.-23. mars og voru grunnskólar og félagsmiðstöðvar á landinu öll hvött til að taka þátt. Víkurskóli tók höndum saman og myndaði keðju á skólalóðinni og sýndi þannig samstöðu með margbreytileika. Við tókum einnig þátt með samtali við nemendur um rasisma, beinan og óbeinan, og mikilvægi virkrar samstöðu.
1-1-2 dagurinn
/by VikurskoliÞann 11.2 ár hvert heldur Neyðarlínan upp á 112 daginn. Dagurinn er til þess að minna landsmenn, ekki síst börn og unglinga, á númerið sem allir þurfa að kunna í neyð.
Viðbragðsaðilar í Mýrdalshreppi létu sitt ekki eftir liggja, en slökkvilið, sjúkraflutningamenn, lögregla og björgunarsveit mættu og sýndu hin ýmsu tæki.
Nemendur fengu færi á að skoða dótið, setjast inn í bílana, kveikja á sírenum og alls konar skemmtilegt.
Við þökkum viðbragðsaðilunum kærlega fyrir komuna.
Þjóðlegir dagar og þorrablót
/by VikurskoliÁ dögunum voru haldnir þjóðlegir dagar, en þeir eru orðnir að árlegum viðburði hjá okkur hér í Víkurskóla. Þá er unnið með ýmislegt sem tengist íslenskum hefðum, t.d. þjóðsögur, lopapeysumynstur, hjátrú og kveðskap. Þjóðlegum dögum lauk svo með hinu árlega þorrablóti Víkurskóla sem fór fram með hefðbundnu sniði. Nemendur og starfsfólk nutu þess að borða […]
Þjóðlegir dagar
/by VikurskoliLestrartréð, lestrarátak Skólabókasafnsins
/by VikurskoliSkólabókasafnið okkar hefur aldeilis tekið stakkaskiptum í vetur undir stjórn Lisu Kaplon bókasafnsfræðings. Undir hennar stjórn var mjög skemmtilegt lestrarhvatningarverkefni á aðventunni. Í næstu viku fer af stað lestrarátak fyrir vorönn sem er samstarfsverkefni Lisu og Editar listakennara og nemenda í 4.-6. bekk. Lestrarátakið kalla þær Lestrartréð. Við hvetjum foreldra/forráðamenn til að kíkja við á bókasafninu.
Hér fylgir líka tengill á kynningarbréf vegna þessa frábæra verkefnis. Lestrarátak vorönn 2025 – boðsbréf
Jólakveðja
/by VikurskoliAðventan í Víkurskóla
/by VikurskoliAðventan hefur liðið hratt hjá okkur í Víkurskóla. Margir skemmtilegi,r litlir viðburðir til þess að lita tilveruna. Vasaljósaferð og leikir á Syngjandanum, heimsókn í Víkurkirju og söngstundir með Brian Haroldsson. Við höfum líka fengið gesti í húsið, Slökkviliðið kom í heimsókn til 3.-4. bekkjar og svo má ekki gleyma stórskemmtilegri heimsókn Sævars Helga Bragasonar rithöfundar og stjörnuskoðunarsérfræðíngs. Hér fylgir með mynd af nemendum í 1.-6. bekk sem heimsóttu íbúa á Hjallatúni og sungu af hjartans lyst fyrir þá. Aðventan er tími til að gleðjast og gleðja aðra. Nemendur eru nú að keppast við að undirbúa Litlu-jólin sem verða þriðjudaginn 17. desember n.k.
Jóladagskrá
/by VikurskoliÞað styttist í jólahátíðina. Í desember gerum við eitt og annað til að brjóta upp hversdaginn í aðdraganda jólanna. Hér gefur að líta það helsta sem verður á dagskránni hjá okkur í Víkurskóla.
Hér er hægt að skoða Jóladagskrá 2024