Röddin upplestrarkeppni

Ár hvert er haldin upplestrarkeppnin Röddin sem er hvatningarverkefni grunnskólanna í Vestur-Skaftafellssýslu, Rangárvallasýslu og Vestmannaeyja. Okkur í Víkurskóla hlotnaðist sá heiður að halda keppnina í ár og fór hún fram á Hótel Kötlu að Höfðabrekku þriðjudaginn 14. apríl og þökkum við fyrir rausnarlegar móttökur þar.

Fyrir hönd Víkurskóla kepptu þær Harpa Sóllilja Ólafsdóttir og Michalina Danuta Rutkowska. Að auki las Gréta Björk Einarsdóttir upp kynningu á ljóðum keppninnar. Stóðu þær sig allar með mikilli prýði.

Úrslitin fóru sem svo:

  1. sæti – Caritas Rós Tinnudóttir, Grunnskóli Vestmannaeyja
  2. sæti – Hrafnkell Frosti Ómarsson, Grunnskólinn á Hellu
  3. sæti – Embla Bríet Einarsdóttir, Hvolsskóli

 

Heimilsfang: Mánabraut 3 |  Pósthúmer: 870 Vík | Símanúmar: 487 1242 | Netfang: vikurskoli@vikurskoli.is

Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 487-1242 eða á netfangið vikurskoli@vikurskoli.is