Skíðaferðalag Víkurskóla
Þann 19.feb s.l skelltum við okkur í skíðaferðalag í Bláfjöll. Veðrið var gott og skíðafærið var ágætt miðað við hvað það var búið að vera hlýtt og úrkomulítið í janúar og febrúar. Þetta voru nemendur 8. – 10. bekkjar sem fóru saman í bíla með Victoriu, Adam, Söndru, Kötu og Margréti Lilju. Sumir stigu á skíðum í fyrsta sinn á meðan aðrir voru lengra komnir. Við skemmtum okkur mjög vel og komu allir alsælir heim eftir góðan dag.






