Skólaferðalag 7.-10. bekkjar
Dagana 20.-22. maí fóru nemendur í 7.-10. bekk í skólaferðalag í Flóann ásamt Victoriu og Þuríði.
Við gerðum ýmislegt skemmtilegt, m.a. fórum við á kajak á Stokkseyri og skoðuðum Veiðisafnið. Við fórum líka í sund á Selfossi og í Adrenalíngarðinn á Nesjavöllum. Gist var í félagsheimilinu Félagslundi og veðrið lék við okkur allan tímann. Vel heppnuð ferð í alla staði.






