Skólaslit Víkurskóla
Víkurskóla var slitið við hátíðalega athöfn föstudaginn 31. maí s.l. Að þessu sinni voru þrír nemendur útskrifaðir úr 10. bekk og 7 nemendur úr forskóladeild. Við sendum þeim okkar bestu framtíðaróskir. Fyrir hönd skólans sendi ég nemendum, foreldrum og starfsfólki bestu sumarkveðjur. Jafnframt sendi ég samstarfsaðilum og velunnurum Víkurskóla kærar kveðjur með þakklæti fyrir samstarfið á skólaárinu.
Skólastjóri