Víkingaþema

Krakkarnir í 2. og 3. bekk hafa síðust vikur lært fjölmargt um landnám Ísland og Víkingaöld. Krakkarnir hafa skyggnst inn í daglegt líf landnámsfólks, lært um stéttaskiptingu, hvernig landsvæði hentaði best til búsetu, tómstundir, siði, fatnað og skart, mat og auðvitað um hina ýmsu landsnámsmenn- og konur. Eftir skartgripagerð, lestur, grúsk, teiknivinnu og fleira fórum við í Víkurfjöru og útbjuggum í sameiningu landnámsbæi. Mynduð voru fjöll, tún, kartöflugarðar, skálar, skip og varnargarðar og rúsínan í pylsuendanum var að finna öndvegissúlu.













