Röddin, upplestrarkeppni.
Þann 28. apríl fór fram lokakeppni Raddarinnar upplestrarkeppni 7. bekkinga. Keppnin fór að þessu sinni fram á Kirkjubæjarklaustri. Þar kepptu nemendur úr skólunum í Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu auk Vestmannaeyja í upplestri á texta og ljóðum. Keppendur Víkurskóla þær Íris Anna Orradóttir og Aníta Ósk Reynisdóttir stóðu sig með sóma og Íris Anna varð í 3. sæti í þessari lokakeppni.