Fræðslu- og menningarferð.
Frábær fræðslu- og menningarferð að baki hjá nemendur í 1. – 6. bekk. Byrjuðum ferðina á því að heimsækja Lava Center á Hvolsvelli, skoðuðum þar eldfjalla- og jarðskjálftasýninguna sem var mjög áhugaverð. Því næst skoðum við hellana við Ægissíðu á Hellu þar sem við upplifðum einstakan ævintýraheim. Einnig var farið í sund á Hellu og þar var mikil gleði og kátína. Í lokin fengum við frábærar pítsur í Árhúsi áður en við lögðum heim á leið. Frábær ferð í alla staði bæði fróðleg og skemmtileg.