Nemendafélag Víkurskóla safnar fyrir skólapeysum
Nemendur á elstastigi í vali komu með þá hugmynd að safna fyrir skólapeysum. Tveir elstu bekkirnir tóku af skarið og skipulögðu fyrstu fjáröflunina, hnallþóruhappdrætti.
Nemendur höfðu selt happdrættismiða við góðar viðtökur og í dag voru vinningshafar dregnir út. Nemendur afhentu sjálfir hnallþórurnar til vinningshafa.
Til hamingju vinningshafar með kökurnar og takk allir sem styrktu með miðakaupum.