Nemendur í 4. – 6. bekk kanna undur himingeimsins í Drangamixi

Síðustu vikur hafa nemendur í 4. – 6. bekk dýft sér í undur himingeimsins á fjölbreyttan og skapandi hátt. Verkefnið hefur vakið mikla forvitni og sköpunargleði meðal nemenda, sem hafa rannsakað ótal spennandi atriði um geiminn.

Nemendur hafa aflað sér fróðleiks um sólkerfið okkar, reikistjörnurnar og stjörnumerkin. Einnig hafa þau búið til eigin geimverur sem gætu hugsanlega búið á reikistjörnunum og hannað geimskip sem gætu flutt þau þangað. Tunglið og mismunandi tunglfasar hafa einnig verið til skoðunar, ásamt mörgum öðrum áhugaverðum þáttum sem tengjast himingeimnum.

Verkefnið hefur sameinað fræðslu og sköpun, þar sem nemendur hafa notað ímyndunaraflið til að setja saman eigin sýn á geiminn. Afrakstur vinnunnar verður kynntur í skólanum á næstu dögum, þar sem foreldrar og aðrir gestir fá tækifæri til að sjá hvað hefur verið unnið.

Við erum afar stolt af nemendum okkar og þeirri miklu vinnu sem þau hafa lagt í verkefnið. Þau hafa sýnt einstaka hugmyndaauðgi og áhuga á vísindum og geimnum – hver veit nema hér sé framtíðarstjörnufræðingur séu þegar farir að horfa til sjarnanna með nýjum augum.

Gjöf frá Kvenfélagi Dyrhólahrepps

Kvenfélag Dyrhólahrepps færði Nemendasjóði Víkurskóla 180.000 krónur nú á dögunum. Gjöfin er ágóði af árlegum kökubasar félagsins og ætluð til styrktar árshátíðarverkefni Víkurskóla sem að þessu sinni er Kardemommubærinn. Nemendur og starfsfólk skólans þakka kvenfélaginu kærlega fyrir gjöfina.

Heimsókn RÚV til 7.- 8.bekkjar

Fyrr í vetur sendu nemendur 7.-8. bekkjar erindi til sveitarstjórnar Mýrdalshrepps. Erindið var þess efnis að sparkvöllurinn á skólalóðinni væri farinn að láta á sjá og þarfnaðist viðhalds, og vildu krakkarnir athuga hvort sveitarstjórnin væri tilbúin að leggja til þann kostnað sem þyrfti til að koma honum í stand. Erindið vakti áhuga hjá fréttastofu RÚV og komu þau í heimsókn til krakkanna í 7.-8. bekk þann 27. mars s.l. Það vakti athygli fréttamannanna hvað krakkarnir voru prúð og hversu vel þau kæmu fram. Við þökkum RÚV fyrir komuna og það má sjá krakkana í fréttatímanum sunnudaginn 30.mars.

Samþættingarverkefni varðandi umhverfið

Nemendur í 2. og 3. bekk eru undanfarið búnir að vera að vinna að þematengdu samþættingarverkefni varðandi umhverfið, sjálfbærni og mengun og rusl í umhverfinu. Rætt var um skaðsemi plasts í umhverfinu og hvernig við viljum ganga um náttúruna, farið var í ruslatínsluferðir um nágrennið, ruslið flokkað, vigtað og farið með það í endurvinnslu. Tekið var til hliðar það rusl sem við töldum að nýta mætti til listrænnar endurvinnslu og unnið með það í að búa til hin ýmsu listaverk, eins og eldfjall, fjós, veitingastað í þorpinu og náttúrulistaverk

Dagur stærðfræðinnar – Sköpun og samvinna í anda tölunnar pí

Þann 14. mars var haldið upp á Dag stærðfræðinnar í grunnskólanum okkar. Dagsetningin er engin tilviljun, en 14.3. vísar til tölunnar π (pí) sem er eitt þekktasta tákn stærðfræðinnar.

Að þessu sinni var þema dagsins „Stærðfræði, listir og sköpun“. Allir nemendur skólans tóku þátt í fjölbreyttum og skemmtilegum verkefnum þar sem unnið var í blönduðum hópum þvert á aldur. Elstu og yngstu nemendur unnu saman að spennandi viðfangsefnum sem byggðu á tengingu stærðfræði við myndlist, hönnun og sköpun.

Dagurinn var bæði notalegur og gott uppbrot frá hefðbundnu skólastarfi. Það var gaman að sjá hversu fjölbreyttar nálganir urðu til þegar stærðfræðin fékk að blómstra í gegnum listir og sköpun.

Árshátíð 2025

Hönd í hönd

Alþjóðadagur gegn kynþáttamisrétti var 21.mars síðastliðin.  Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti fór fram 16.-23. mars og voru grunnskólar og félagsmiðstöðvar á landinu öll hvött til að taka þátt. Víkurskóli tók höndum saman og myndaði keðju á skólalóðinni og sýndi þannig samstöðu með margbreytileika. Við tókum einnig þátt með samtali við nemendur um rasisma, beinan og óbeinan, og mikilvægi virkrar samstöðu.

1-1-2 dagurinn

Þann 11.2 ár hvert heldur Neyðarlínan upp á 112 daginn. Dagurinn er til þess að minna landsmenn, ekki síst börn og unglinga, á númerið sem allir þurfa að kunna í neyð.
Viðbragðsaðilar í Mýrdalshreppi létu sitt ekki eftir liggja, en slökkvilið, sjúkraflutningamenn, lögregla og björgunarsveit mættu og sýndu hin ýmsu tæki.
Nemendur fengu færi á að skoða dótið, setjast inn í bílana, kveikja á sírenum og alls konar skemmtilegt.

Við þökkum viðbragðsaðilunum kærlega fyrir komuna.

 

Þjóðlegir dagar og þorrablót

Á dögunum voru haldnir þjóðlegir dagar, en þeir eru orðnir að árlegum viðburði hjá okkur hér í Víkurskóla. Þá er unnið með ýmislegt sem tengist íslenskum hefðum, t.d. þjóðsögur, lopapeysumynstur, hjátrú og kveðskap. Þjóðlegum dögum lauk svo með hinu árlega þorrablóti Víkurskóla sem  fór fram með hefðbundnu sniði. Nemendur og starfsfólk nutu þess að borða […]

Þjóðlegir dagar

Heimilsfang: Mánabraut 3 |  Pósthúmer: 870 Vík | Símanúmar: 487 1242 | Netfang: vikurskoli@vikurskoli.is

Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 487-1242 eða á netfangið vikurskoli@vikurskoli.is