Þorrablót Víkurskóla.

Að venju héldum við þorrablót með okkar hefðbundnu sniði. Að vísu þurftum við að færa það til þar sem covid bankaði hressilega uppá. Þorramaturinn var á sínum stað að honum loknum söfnuðust allir saman á sal skólans og nemendaráð flutti annál ársins, allir sungu þjóðleg lög af hjartans lyst og svo síðast en ekki síst var tekið í spil. Yngri nemendur spiluðu Ólsen, Ólsen og eldri nemendur spiluðu félagsvist. Í fyrsta sæti í eldri hópnum, annað áríð í röð var Björn Vignir og Maksimyllian var sigurvegari í Ólsen, Ólsen keppninni. Við óskum til hamingju. Þessi dagur var í alla staði velheppnaður.

Valentínusarball í Víkurskóla

Í dag eru krakkarnir í 7.-10. bekk í óðaönn að undirbúa Valentínusarball skólans. Til stóð að það yrði í kvöld en veðurspáinn er slæm þannig að ballið verður á morgun þriðjudaginn 15. febrúar klukkan 19:30. Skólabíllinn keyrir.

 

COVID turninn varð til.

Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands með það að markmiði að hvetja alla landsmenn til að hreyfa sig daglega. Víkurskóli er heilsueflandi grunnskóli og tekur þátt í þessu verkefni á hverju ári. Samkvæmt Aðalnámskrá grunnskóla (2011) er Heilbrigði og velferð einn af sex grunnþáttum menntunnar. Heilsueflandi grunnskóli er ætlað að styðja skóla í að vinna markvisst að heilsueflingu í starfi sínu. Í því felst að skapa skólaumhverfi sem stuðlar að andlegri-, líkamlegri- og félagslegri heilsu og vellíðan nemenda og starfsfólks í samvinnu við heimili og nærsamfélag. Í lífshlaupinu er markmiðið að nemendur hreyfa sig í minnstalagi í 60 mínútur á dag í tvær vikur.

Krakkarnir í 3. og 4. bekk eru orðin smá þreytt á COVID eins og flestir í samfélaginu. Í útihreyfingu dagsins var skipulagið að búa til snjóhús en við komumst fljótt að því að það var aðeins of tímafrekt verkefni. Bekkurinn dó ekki ráðalaus enda lausnamiðuð með eindæmum og snjóhúsið varð að snjóturni. Í þessu samvinnuverkefni var mikið spjallað saman og kom upp sú góða hugmynd að það væri nokkuð gott ef að hægt væri að loka COVID veiruna inni í turni og geyma hana þar. Varð úr að snjóturninn varð að COVID turni og trúum við því staðfastlega að veiran geymist vel í honum.

Smá sýnishorn af útikennslu hjá 1. og 2. bekk síðustu daga en þau voru dugleg að nýta góða veðrið að undanförnu eftir allt of langa inniveru í tengslum við covid. Eins og sjá má skein gleðin úr hverju andliti og að þau voru dugleg að nýta sér það sem að vegi þeirra varð til eflingar á styrk og jafnvægi.

Víkurskóli fær góða bókagjöf.

Svavar Guðmundsson rithöfundur og einn af okkar góðu velunnurum færði Víkurskóla á dögunum veglega bókagjöf. Svavar hefur ekki látið fötlun sína stöðva sig við ritstörfin þrátt fyrir að hann sé einungis með 10% sjón. Á dögunum gerði hann samning við Menntamálastofnun um að ein af bókum hans verður í boði sem námsgagn fyrir grunnskóla. Víkurskóli þakkar Svavari fyrir hans hlýhug og góðu gjöf.

Erasmus+ heimsókn samstarfsskóla Víkurskóla.

Það hefur sannarlega verið áskorun að taka þátt í alþjóðasamstarfi á tímum Covid 19. Verkefnið sem Víkurskóli lagði af stað í haustið 2019 stoppaði í mars 2020. Nú á haustdögum var ákveðið að gera nýtt plan og það kom í okkar hlut að ríða á vaðið og taka á móti gestum nú fyrir skemmstu.

Samstarfsskólar Víkurskóla eru staðsettir í Þýskalandi, Póllandi, Kanaríeyjum, Grikklandi og Finnlandi. Allir gátu komið að undanskyldum Finnum sem ekki fengu fararleyfi. Alls taldi hópurinn 10 nemendur og 8 kennara. Víkurskóli undir stjórn Victoriu verkefnastjóra Erasmus+ setti upp metnðarfulla dagskrá þá daga sem gestirnir dvöldu hjá okkur. Við fengum Adam forstöðumann félagsmiðstöðvarinnar OZ og Evu Dögg í Garðakoti í lið með okkur og tóku þau m.a. að sér að vera með vinnusmiðju nemenda sem gekk út á að allir myndu skapa sína draumaveröld byggða á því sem hver og einn teldi mikilvægt fyrir sig sem einstakling. Victoria tengdi þessa vinnu jafnframt við hugmyndafræði Uppeldis til ábyrgðar sem skólinn hefur á sinni stefnuskrá. Hópurinn fór í styttri og lengri ferðir auk þess sem þau fóru á hraunsýninguna Lava Show.  Margir greiddu götu okkar við heimsókn samstarfsskóla okkar.  Kötlusetur lagði til fundarastöðu ásamt því að þær Harpa Elín forstöðumaður og Anna starfsmaður setursins kynntu starfsemina, Hótel Vík bauð góðan afslátt af gistingu, sömuleiðis fengu gestirnir góðan afslátt í Ice Wear, frían sundpassa hjá Íþróttamiðstöð Mýrdalshrepps og góðan afslátt hjá Lawa Show. Þá má ekki gleyma foreldrum og starfsmönnum sem lögðu til veitingar og aðstoðuðu á svo marga vegu.

Það var mjög gaman að sjá þrátt fyrir hvað heimsóknin var stutt hvað krakkarnir af þessum 5 þjóðernum náðu vel saman. Til upprifjunar þá heitir verkefnið,,Fit for life’’. Markmið þess er að gera nemendur betur meðvitaða um hvað það er sem stuðlar að hreysti sálar og líkama. Horft er til þátta eins og hreyfingar, næringar, sjálfsmyndar, félagsfærni og andlegrar líðan. Jafnframt gera skólarnir sér far um að  draga fram það sem skiptir máli í þeirra menningu sem styrkir andlega vellíðan s.s. dans, tónlist, leiklist og útivist. Skólarnir munu skipta á milli sín margskonar verkefnavinnu sem tengist inn á þessa þætti.

Skák í Víkurskóla.

Einn af viðburðum á jóladagskráinni okkar var að fá kynningu á skák í skólann. Skák nýtur vaxandi vinsælda á nýjan leik hjá börnum og er það mjög ánægjulegt. Þessi viðburður var skipulagður í samstarfi við Ungmennafélagið Kötlu. Stefán Bergsson kennari kom á vegum Skáksambands Íslands og var með kynningu og kennslu í skák í öllum námshópum. Ungmennafélagið Katla keypti 10 töfl sem skólinn fær að hafa afnot af og skólinn fjárfesti í skákklukkum. Í lok dags var Stefán jafnframt með stutta kynningu fyrir kennara og starfsmenn. Það er öruggt að þessi heimsókn mun glæða áhuga margra á skákinni.

Sigrúnarstund í Víkurskóla á fullveldisdaginn 1. desember.

Í tilefni af 100 ára ártíð Sigrúnar Jónsdóttur kirkjulistakonu sem var fædd og uppalinn í Vík var haldin stutt dagskrá og listasýning þann 1. desember sl. Viðburðurinn var samstarfsverkefni Kötluseturs og Víkurskóla. Nemendur í 3.-6. bekk heimsóttu Kötlusetur á haustdögum þar sem Harpa Elín forstöðukona tók á móti þeim og fræddi þau um Sigrúnu og hennar merkilega lífshlaup og listamannsferil. Kötlusetur heldur jafnframt utan um sýningu á verkum Sigrúnar auk fiski-og fraktskipsins Skaftfellings sem Sigrún stóð fyrir að flytja til Víkur og bjarga honum frá endanlegri eyðileggingu. Í kjölfarið á fræðslunni sem nemendur fengu í Kötlusetri unnu nemendur verk undir leiðsögn Kolbrúnar Hjörleifsdóttur listakennara innblásinn af verkum Sigrúnar. Á viðburðinum voru verk nemenda til sýnis auk listaverka Sigrúnar sem fengin voru að láni. Harpa Elín og Kolbrún stýrðu stundinni og sögðu frá Sigrúnu. Í lokin sungu allir saman. Til stóð að viðburðurinn yrði stærri í sniðum og opin öllum en slíkt var ekki hægt vegna samkomutakmarkanna. Viðburðurinn var afar vel heppnaður og dæmi um farsælt samstarf skólans við Kötlusetur. Verkefnið hefur jafnframt skírskotun til Kötlu Unesco jarðvangs þar sem skólinn er einn af Geo-skólum jarðvangsins og hefur um leið, m.a. það hlutverk að miðla menningu og sögu til nemenda.

Sigrún Jónsdóttir fæddist í Vík í Mýrdal 19. ágúst 1921. Hún ólst upp í Vík í Mýrdal sem mótaði hana og þar hafði hún alltaf sínar sterku rætur.  Sigrún lauk námi frá Kvennaskólanum og síðar Kennaraskóla Íslands.  Sigrún nam síðar list í Danmörku, Svíþjóð og víðar. Sigrún helgaði sig listinni og varð ein fremsta kirkjulistakona Norðurlanda.  Hún átti alltaf sterkar taugar til sinnar heimabyggðar í Vík og ræddi oft hversu uppvaxtarárin hefðu mótað sitt líf mikið.

 

Slökkviliði Mýrdalshrepps komu og heimsóttu 3. og 4. bekk.

Ívar og Sigurður frá Slökkviliði Mýrdalshrepps komu og heimsóttu 3. og 4. bekk í dag, 6.desember í tengslum við eldvarnir sem eru alltaf mikilvægar en þó alveg sérstaklega mikilvægar í desember þegar mikið er um kertaloga, kertaskreytingar og allskonar bakstur og eldamennsku. Nemendur fengu m.a. góða fræðslu um reykskynjara, slökkvitæki, eldvarnateppi og flóttaleiðir. Einnig horfðu þeir á myndband um Loga og Glóð sem eru eldklárir aðstoðarmenn slökkviliðsins og hjálpa til við að vinna á móti Brennuvargi. Nemendur fengu bækur og endurskinsmerki að gjöf og þökkum við kærlega fyrir heimsóknina og gjafirnar. Við verðum eldklár um jólin.

Heimilsfang: Mánabraut 3 |  Pósthúmer: 870 Vík | Símanúmar: 487 1242 | Netfang: vikurskoli@vikurskoli.is

Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 487-1242 eða á netfangið vikurskoli@vikurskoli.is