Heimilsfang: Mánabraut 3 | Pósthúmer: 870 Vík | Símanúmar: 487 1242 | Netfang: vikurskoli@vikurskoli.is
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 487-1242 eða á netfangið vikurskoli@vikurskoli.is
Heimilsfang: Mánabraut 3 | Pósthúmer: 870 Vík | Símanúmar: 487 1242 | Netfang: vikurskoli@vikurskoli.is
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 487-1242 eða á netfangið vikurskoli@vikurskoli.is
Þjóðlegir dagar og þorrablót
/in frettir, Uncategorized /by VikurskoliÁ dögunum voru haldnir þjóðlegir dagar, en þeir eru orðnir að árlegum viðburði hjá okkur hér í Víkurskóla. Þá er unnið með ýmislegt sem tengist íslenskum hefðum, t.d. þjóðsögur, lopapeysumynstur, hjátrú og kveðskap. Þjóðlegum dögum lauk svo með hinu árlega þorrablóti Víkurskóla sem fór fram með hefðbundnu sniði. Nemendur og starfsfólk nutu þess að borða […]
Skólaslit 2026
/in frettir /by kennariVíkurskóla var slitið 29. maí sl. Að þessu útskrifuðust þrír piltar úr 10. bekk. Þeir eru Sigurgeir Máni Jóhannson, Óliver Ísar Sigfússon og Andri Berg Jóhannsson. Við óskum þeim innilega til hamingju og velfarnaðar í næstu skrefum í lífinu. Hér fylgir ávarp skólastjóra við skólaslit.Avarp-skólaslit 29.5.2026
Goggins áskorun og bandýmót
/in frettir, Uncategorized /by VikurskoliÁ vordögum var sannkallaður íþróttadagur hjá unglingadeildinni. Þriðjudaginn 26. maí fengu nemendur 7.-10. bekkjar svokallaða Goggins áskorun sem fól í sér að hlaupa þrjá kílómetra á klukkutíma fresti fram að hádegi. Þess á milli fór fram bandýmót í íþróttahúsinu.

Hver hringur í Gogging áskoruninni gaf liðinu 10 stig en hvert mark í bandý eitt stig.
Krakkarnir voru að sjálfsögðu dugleg að taka þátt og skemmtu sér vel.
Í sigurliðinu voru þær Freyja, Sigríður, Ísey og Hafdís.
Skólaslit Víkurskóla
/in frettir /by kennariSkólaferðalag 7.-10. bekkjar
/in frettir /by VikurskoliDagana 20.-22. maí fóru nemendur í 7.-10. bekk í skólaferðalag í Flóann ásamt Victoriu og Þuríði.

Við gerðum ýmislegt skemmtilegt, m.a. fórum við á kajak á Stokkseyri og skoðuðum Veiðisafnið. Við fórum líka í sund á Selfossi og í Adrenalíngarðinn á Nesjavöllum. Gist var í félagsheimilinu Félagslundi og veðrið lék við okkur allan tímann. Vel heppnuð ferð í alla staði.
Nemendur í 1. – 3. bekk fengu góða heimsókn frá lögreglunni
/in frettir /by VikurskoliTekin var góð um ræða um reiðhjól, öryggisbúnað og útbúnað reiðhjóla, örugg svæði til að hjóla á og útivistartíma. Eftir góðar umræður skoruðu nemendur á gestina í körfubolta og úr varð mikil kátína. Við þökkum samfélagslögreglunni kærlega fyrir heimsóknina.
Heimsókn í Kirkjubæjarskóla
/in frettir /by VikurskoliHeimsókn mennta-og barnamálaráðherra
/in frettir /by kennariMennta-og barnamálaráðherra Inga Sæland kom í heimsókn í Víkurskóla í gær 4. maí. Þetta er fyrsta heimsókn ráðherra menntamála í Víkurskóla á þessari öld en síðast kom Svavar Gestsson líklega árið 1989. Ráherra kynnti sér skólastarfið og spjallaði við nemendur um lífið og tilveruna. Tveir nemendur úr 9.-10. bekk, þau Sigurgeir Máni Jóhannsson og Diljá Mist Guðnadóttir kynntu Erasmus+ verkefni skólans sem ráðherra var mjög hrifin af. Við þökkum henni kærlega fyrir komuna og að sýna skólastarfinu okkar áhuga.
Dansvika
/in frettir /by VikurskoliDagana 27.-30. apríl kom Jón Pétur til okkar með danskennslu. Að þessu sinni lauk dansvikunni ekki með opinni æfingu eins og venjulega en í staðinn sýndu elstu nemendur þeim yngri frumsaminn dans. Að lokum marseruðu hóparnir saman og dönsuðu hókí pókí og fleiri skemmtilega dansa.

Ljósmyndasýning 4.-6. bekkjar
/in frettir /by kennariNemendur í 4.-6. bekk unnu ljósmyndasýningu nú á dögunum en hún var framlag hópsins til Barnamenningarhátíðar á Suðurlandi og Vor í Vík. Krakkarnir unnu í hópum að eftirfarandi þemum; Kærleikur, Vorið, Fegurð, Túlkun, Gamalt. Virkilega skemmtilegt verkefni hjá krökkunum.
Heimsókn á Hjallatún
/in frettir /by VikurskoliÞriðjudaginn 21. apríl fóru nemendur í 7. og 8. bekk í heimsókn á Hjallatún. Nemendur spiluðu ólsen ólsen og félagsvist við heimilisfólk og svo var þeim boðið upp á vöfflur. Heimsóknin gekk glimrandi vel og auðvitað stóðu krakkarnir sig með prýði eins og alltaf.