16 desember

Jólafrí

15 desember

Litlujól

14 desember

Jólaball

Kaffihúsakvöld 2023

Einn af föstu póstum skólastarfsins er kaffihúskvöld Víkurskóla í tilefni af Degi íslenskrar tungu. Að þessu sinni kom Bergrún Íris Sævarsdóttir barnabókahöfundur og myndskreytir til okkar. Hún las úr bókum sínum en hún leggur áherslu á að semja bækur fyrir mismunandi áhugasvið barna enda eins og hún segir krakkarnir eiga líka að geta valið sér bókmenntategundir eins og fullorðnir.

Nemendur Víkurskóla tóku einnig þátt í kvöldinu, nemendur 7. bekkjar lásu upp ljóð eftir Jónas Hallgrímsson í tilefni af því að æfingatímabil fyrir upplestrarkeppnina Röddina hefst á þessum degi. Kór Tónskóla Mýrdælinga söng og var þetta í annað skiptið sem þessi glænýi barnakór kom fram undir stjórn Alexöndru Chernyshovu. Síðast en ekki síst þá tóku allir nemendur skólans þátt í að baka fyrir kaffihúsið en hún Victoria Reinholdsdóttir töfraði fram glæsilegt kaffihlaðborð með nemendum. Á veggjum skólans gaf að líta verkefni sem unniðhefur verið að í haust, m.a. stórt þemaverkefni nemenda í 2.-6. bekk sem fjallaði um Fugla og gróðurfar í Mýrdalshreppi. Að venju var húsfyllir á þessum viðburði.

Tombóla í Víkurskóla fimmtudaginn 23. nóvember

Krakkarnir í 5.-6. bekk Víkurskóla ætla halda tombólu til styrktar Björgunarsveitinni í Vík

Kaffihúskvöld 2023

Bleiki dagurinn

Á Bleika deginum hvetjum við alla til að vera bleik – fyrir okkur öll bera slaufuna, klæðast bleiku og lýsa skammdegið upp í bleikum ljóma svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein finni stuðning okkar og samstöðu. Víkurskóli tekur auðvitað þátt.

Bleiki dagurinn föstudaginn 20. október 2023!

Við fengum gjöf

Þær mæðgur Margrét og Sif á Hótel Dyrhólaey komu færandi hendi á dögunum með glænýja og fína saumavél sem þær gáfu skólanum. Það er ómetanlegt fyrir skólann að eiga svona velunnara. Kærar þakkir

!

Dans, dans, dans

Fastir liðir í skólastarfinu og námi nemenda er að læra grunn í dansi. Við fáum Jón Pétur til okkar tvisvar yfir skólaárið sem er ómetanlegt. Að þessu sinn fór opna æfingin fram í Leikskálum þar sem fjölskyldum nemenda var boðið að koma og fylgjast með og taka þátt í skemmtilegu balli í lokin.

 

Heimilsfang: Mánabraut 3 |  Pósthúmer: 870 Vík | Símanúmar: 487 1242 | Netfang: vikurskoli@vikurskoli.is

Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 487-1242 eða á netfangið vikurskoli@vikurskoli.is