Göngum í skólann
Sem fyrr tekur Víkurskóli þátt í lýðheilsuverkefni Íþrótta- og ólympíusambands Íslands, GÖNGUM Í SKÓLANN. Þetta verkefni er eitt af þeim verkefnum sem heilsueflandi skólastarf leggur áherslu á. Nemendur, foreldrar og starfsmenn eru hvattir til að nota virkan ferðamáta í og úr skóla og setja hreyfingu á dagskrá í daglegu lífi. Í morgun hófst verkefnið formlega hjá okkur með athöfn á sal. Þvínæst drógu elsti nemandinn skólans Kristín Gyða og tveir yngstu nemendur skólans sem eiga afmæli saman daginn, þeir Ásmundur Kristinn og Nathaniel fána Heilsueflandi skóla að hún. Þar á eftir stóðu íþróttakennarar skólans fyrir íþróttafjöri á Víkurvelli og þemað var innblásið af Ólympíuleikum fatlaðra en þar fengu nemendur að spreyta sig á fjölbreyttum leikjum þar sem þeir gátu sett sig í spor fatlaðra íþróttaiðkenda.