Goggins áskorun og bandýmót
Á vordögum var sannkallaður íþróttadagur hjá unglingadeildinni. Þriðjudaginn 26. maí fengu nemendur 7.-10. bekkjar svokallaða Goggins áskorun sem fól í sér að hlaupa þrjá kílómetra á klukkutíma fresti fram að hádegi. Þess á milli fór fram bandýmót í íþróttahúsinu.
Hver hringur í Gogging áskoruninni gaf liðinu 10 stig en hvert mark í bandý eitt stig.
Krakkarnir voru að sjálfsögðu dugleg að taka þátt og skemmtu sér vel.
Í sigurliðinu voru þær Freyja, Sigríður, Ísey og Hafdís.



Við urðum nú aldeilis hissa þegar Pósturinn í Öldunni hafði samband og sagði að við ættum pakka og bréf frá jólasveininum. Það kom á daginn að þessi pakki hafði ekki komið með póstbílnum heldur náðist á myndband úr öryggismyndavél þegar jólasveinninn kemur í eigin persónu að nóttu til inn í Ölduna og skilur pakkann eftir! Það sem hann gerði svo líka verður ekki sagt frá hér. Við sendum jólasveininum kærar þakkir fyrir þennan óvænta glaðning. TAKK JÓLI!





























