1. og 2. bekkur kominn í regnbogaskap.
Nemendur í 1. og 2. bekk fengu íþróttakennslu utandyra í dag. Í miðjum tíma skartaði himininn þessum fallega regnboga og ekki annað hægt en að smella af mynd. Við töldum að hann væri að minna okkur á Regnbogahátíðina, hátíð okkar Mýrdælinga sem að fram fer um helgina. Í lok tímans fengu þau svo að heyra frumsamið ævintýri um börn í Vík sem að reyndu að finna fjársjóð við enda regnbogans. 





