Víkurskóli sími : 487-1242 netfang : vikurskoli@vikurskoli.is / Skólabílstjórar Ingi Már : 894-9422 – Hjördís Rut: 861-0294
Heimilsfang: Mánabraut 3 | Pósthúmer: 870 Vík | Símanúmar: 487 1242 | Netfang: vikurskoli@vikurskoli.is
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 487-1242 eða á netfangið vikurskoli@vikurskoli.is
Stærðfræðifjör hjá 3. – 7. bekk
/0 Comments/in frettir /by VikurskoliÞað ríkir oft mikil gleði og áhugi í stærðfræðifjöri hjá 3. – 7. bekk enda verið að vinna að skapandi verkefnum í stærðfræði á fjölbreytilegan hátt.
Síðasta viðfangsefni krakkanna var að hanna og skapa bát sem gæti siglt niður Víkuránna . Í verkefninu reyndi á útsjónasemi, samvinnu og ígrundun og var hver báturinn á fætur öðrum listalega hannaður.
Í lokin var haldin heilmikil kappsigling á Víkuránni þar sem reyndi á hæfni bátanna, sem allir náðu í mark.
Fleiri myndir.
Í tilefni af Degi gegn einelti 8. nóvember
/0 Comments/in frettir /by VikurskoliÞann 8. nóvember var baráttudagur gegn einelti. Í Víkurskóla voru fjölbreytt viðfangsefni tengd umfjöllun um einelti. Starfsfólk og nemendur unnu eitt sameiginlegt verkefni sem fólst í því að hver og einn útbjó og skreytti púsl sem síðan var raðað upp í eitt stórt mynverk. Markmið verksins er að draga fram með myndrænum hætti að við erum öll hluti af einni heild og getum öll passað saman.
Hrekkjavakan
/0 Comments/in frettir /by VikurskoliHrekkjavakan var skemmtileg tilbreyting í skólastarfinu. Nornir komu ríðandi á kústi, …og breyttu nemendum í alls konar furðuverur…allir bjuggu til kóngulær, svo var lesin Draugasaga, Sigrúnar Eldjárn…við skulfum á beinunum, …en komumst svo að því að þetta var glamrið í beinagrindinni á DRAUGAGANGINUM í sögunni….
Orðsending vegna nýrrar reglugerðar Covid-19
/0 Comments/in frettir /by VikurskoliVegna nýrrar reglugerðar heilbrigðisráðuneytisins um takmörkun á skólastarfi vegna Covid 19 þá er Víkurskóli lokaður fyrir gestakomur frá og með 3. nóvember til og með 17. nóvember n.k. Þeir sem eiga bókað viðtal eða hafa látið vita af komu sinni eru beðnir um að vera með andlitsgrímu.
Aðgerðir Víkurskóla til að uppfylla tilmæli reglugerðarinnar verða sendar til foreldra/forráðamanna í Mentorpósti í dag 1. nóvember.
Skólastjórnendur
Kynning á gagnvirkri heimasíðu – kennslustund með tveimur öðrum skólum
/0 Comments/in frettir /by VikurskoliÍ dag var merkileg kennslustund hjá nemendum í 7.-10. bekk að tilstuðlan Kötlu jarðvangs, Reykjanes jarðvangs og Veðurstofu Íslands. Nemendur fengu kynningu og kennslu á heimasíðuna Íslensk eldjöll www.islenskeldfjoll.is sem er gagnvirk vefsjá og uppflettirit. Tilefni þessa verkefnis er alþjóðlegur dagur náttúruvár sem er 13. október. Þetta er að öllum líkindum í fyrsta skipti sem okkar nemendur eru í sameiginlegri kennslustund með nágrannaskólum okkar, Kirkjubæjarskóla og Hvolsskóla.