Víkurskóli sími : 487-1242 netfang : vikurskoli@vikurskoli.is / Skólabílstjórar Ingi Már : 894-9422 – Hjördís Rut: 861-0294
Dagatalið
Víkurfjöruverkefnið
Heimilsfang: Mánabraut 3 | Pósthúmer: 870 Vík | Símanúmar: 487 1242 | Netfang: vikurskoli@vikurskoli.is
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 487-1242 eða á netfangið vikurskoli@vikurskoli.is
Upplestrarkeppnin 2025
/in frettir /by VikurskoliÁ dögunum var haldin upplestrarkeppni í Víkurskóla, en nemendur hafa í vetur unnið að því að undirbúa sig fyrir hana. Keppnin var jafnframt undankeppni fyrir Röddina, upplestrarkeppni skólanna í Rangárvallasýslu, V-Skaftafellssýslu og Vestmannaeyja.
Í fyrstu umferð lásu nemendur brot úr Sögunni af Bláa hnettinum eftir Andra Snæ Magnason og í annarri og þriðju umferð lásu nemendur ljóð sem þau völdu sjálf.
Leikar fóru þannig að þau Hafdís Hanna og Bragi Þór munu keppa fyrir hönd Víkurskóla í Röddinni sem fer fram í Vestmannaeyjum þann 13. maí n.k.
Ísey Myrra verður varamaður.
Afrakstur úr Listasmiðjum
/in frettir /by VikurskoliÍ listatímum geta allir prófað mismunandi tækni, leikið sér með litium, form og notað ímyndunaraflið frjálslega. Stundum tengjumst við hátíðum og atburðum, eins og Regnbogahátíð, jólunum, árrshátíð, Halloween o.s.frv. Ef mögulegt er, ferðumst við mjög gjarnan út í náttúruna til að skapa þar og setja upp sýningu utandyra.
Páskakveðja
/in frettir /by kennariÁrshátíð Víkurskóla
/in frettir /by VikurskoliDrangamix – morgunverðarhittingur
/in frettir /by VikurskoliÁ dögunum héldum við morgunverðaboð í skólanum okkar, þar sem nemendur fengu tækifæri til að kynna verkefni sín um Ísland fyrir foreldrum. Nemendur stóðu sig með mikilli prýði og sýndu bæði þekkingu og metnað í sínum kynningum.
Að lokinni kynningu settust allir saman við kaffiborð, þar sem foreldrar höfðu lagt til veitingar í anda pálínuboðs. Þessi samvera skapaði gott tækifæri til að njóta stundarinnar.
Viðburðurinn tókst afar vel, og var sérstaklega ánægjulegt að sjá hve vel foreldrar tóku þátt, sem endurspeglar sterkan stuðning þeirra við skólastarfið.
Skólapeysur
/in frettir /by VikurskoliNemendur á elsta stigi Víkurskóla tóku valáfanga sem hét Fjáröflun. Hlutverk nemenda var að koma með hugmyndir að fjáröflunum, skipuleggja hlutverk hvers og eins, framkvæmd fjáröflunarinnar og utanumhald fjármála. Elstu nemendur skólans komu með þá hugmynd að safna fyrir skólapeysum. Krakkarnir skipulögðu fjáröflunina þau héldu hnallþóruhappdrætti og slógu hvergi af í baksturshæfileikum. Vinningshafar voru afar ánægðir og færum við samfélaginu hjartans þakkir fyrir góðar viðtökur. Þá lásu nemendur á elstastigi í 24 klst og báru út Regnbogabæklinginn fyrir Regnbogahátíð. Nemendur eru mjög ánægðir með nýju skólapeysurnar.
Skíðaferð í Bláfjöll
/in frettir /by VikurskoliÞann 15. mars s.l. fóru nemendur í 6.-8. bekk í skíðaferð í Bláfjöll. Að venju var mikil spenna í kringum ferðina en hún gekk mjög vel og krakkarnir nutu þess að renna sér í brekkunum. Á leiðinni heim stoppuðum við í pizzaveislu á Gallerý Pizza á Hvolsvelli og voru allir komnir til síns heima fyrir kl 20:00.
Nemendur í 4. – 6. bekk kanna undur himingeimsins í Drangamixi
/in frettir /by VikurskoliSíðustu vikur hafa nemendur í 4. – 6. bekk dýft sér í undur himingeimsins á fjölbreyttan og skapandi hátt. Verkefnið hefur vakið mikla forvitni og sköpunargleði meðal nemenda, sem hafa rannsakað ótal spennandi atriði um geiminn.
Nemendur hafa aflað sér fróðleiks um sólkerfið okkar, reikistjörnurnar og stjörnumerkin. Einnig hafa þau búið til eigin geimverur sem gætu hugsanlega búið á reikistjörnunum og hannað geimskip sem gætu flutt þau þangað. Tunglið og mismunandi tunglfasar hafa einnig verið til skoðunar, ásamt mörgum öðrum áhugaverðum þáttum sem tengjast himingeimnum.
Verkefnið hefur sameinað fræðslu og sköpun, þar sem nemendur hafa notað ímyndunaraflið til að setja saman eigin sýn á geiminn. Afrakstur vinnunnar verður kynntur í skólanum á næstu dögum, þar sem foreldrar og aðrir gestir fá tækifæri til að sjá hvað hefur verið unnið.
Við erum afar stolt af nemendum okkar og þeirri miklu vinnu sem þau hafa lagt í verkefnið. Þau hafa sýnt einstaka hugmyndaauðgi og áhuga á vísindum og geimnum – hver veit nema hér sé framtíðarstjörnufræðingur séu þegar farir að horfa til sjarnanna með nýjum augum.