Erasmus+ heimsókn samstarfsskóla Víkurskóla.

Það hefur sannarlega verið áskorun að taka þátt í alþjóðasamstarfi á tímum Covid 19. Verkefnið sem Víkurskóli lagði af stað í haustið 2019 stoppaði í mars 2020. Nú á haustdögum var ákveðið að gera nýtt plan og það kom í okkar hlut að ríða á vaðið og taka á móti gestum nú fyrir skemmstu.

Samstarfsskólar Víkurskóla eru staðsettir í Þýskalandi, Póllandi, Kanaríeyjum, Grikklandi og Finnlandi. Allir gátu komið að undanskyldum Finnum sem ekki fengu fararleyfi. Alls taldi hópurinn 10 nemendur og 8 kennara. Víkurskóli undir stjórn Victoriu verkefnastjóra Erasmus+ setti upp metnðarfulla dagskrá þá daga sem gestirnir dvöldu hjá okkur. Við fengum Adam forstöðumann félagsmiðstöðvarinnar OZ og Evu Dögg í Garðakoti í lið með okkur og tóku þau m.a. að sér að vera með vinnusmiðju nemenda sem gekk út á að allir myndu skapa sína draumaveröld byggða á því sem hver og einn teldi mikilvægt fyrir sig sem einstakling. Victoria tengdi þessa vinnu jafnframt við hugmyndafræði Uppeldis til ábyrgðar sem skólinn hefur á sinni stefnuskrá. Hópurinn fór í styttri og lengri ferðir auk þess sem þau fóru á hraunsýninguna Lava Show.  Margir greiddu götu okkar við heimsókn samstarfsskóla okkar.  Kötlusetur lagði til fundarastöðu ásamt því að þær Harpa Elín forstöðumaður og Anna starfsmaður setursins kynntu starfsemina, Hótel Vík bauð góðan afslátt af gistingu, sömuleiðis fengu gestirnir góðan afslátt í Ice Wear, frían sundpassa hjá Íþróttamiðstöð Mýrdalshrepps og góðan afslátt hjá Lawa Show. Þá má ekki gleyma foreldrum og starfsmönnum sem lögðu til veitingar og aðstoðuðu á svo marga vegu.

Það var mjög gaman að sjá þrátt fyrir hvað heimsóknin var stutt hvað krakkarnir af þessum 5 þjóðernum náðu vel saman. Til upprifjunar þá heitir verkefnið,,Fit for life’’. Markmið þess er að gera nemendur betur meðvitaða um hvað það er sem stuðlar að hreysti sálar og líkama. Horft er til þátta eins og hreyfingar, næringar, sjálfsmyndar, félagsfærni og andlegrar líðan. Jafnframt gera skólarnir sér far um að  draga fram það sem skiptir máli í þeirra menningu sem styrkir andlega vellíðan s.s. dans, tónlist, leiklist og útivist. Skólarnir munu skipta á milli sín margskonar verkefnavinnu sem tengist inn á þessa þætti.

Skák í Víkurskóla.

Einn af viðburðum á jóladagskráinni okkar var að fá kynningu á skák í skólann. Skák nýtur vaxandi vinsælda á nýjan leik hjá börnum og er það mjög ánægjulegt. Þessi viðburður var skipulagður í samstarfi við Ungmennafélagið Kötlu. Stefán Bergsson kennari kom á vegum Skáksambands Íslands og var með kynningu og kennslu í skák í öllum námshópum. Ungmennafélagið Katla keypti 10 töfl sem skólinn fær að hafa afnot af og skólinn fjárfesti í skákklukkum. Í lok dags var Stefán jafnframt með stutta kynningu fyrir kennara og starfsmenn. Það er öruggt að þessi heimsókn mun glæða áhuga margra á skákinni.

Sigrúnarstund í Víkurskóla á fullveldisdaginn 1. desember.

Í tilefni af 100 ára ártíð Sigrúnar Jónsdóttur kirkjulistakonu sem var fædd og uppalinn í Vík var haldin stutt dagskrá og listasýning þann 1. desember sl. Viðburðurinn var samstarfsverkefni Kötluseturs og Víkurskóla. Nemendur í 3.-6. bekk heimsóttu Kötlusetur á haustdögum þar sem Harpa Elín forstöðukona tók á móti þeim og fræddi þau um Sigrúnu og hennar merkilega lífshlaup og listamannsferil. Kötlusetur heldur jafnframt utan um sýningu á verkum Sigrúnar auk fiski-og fraktskipsins Skaftfellings sem Sigrún stóð fyrir að flytja til Víkur og bjarga honum frá endanlegri eyðileggingu. Í kjölfarið á fræðslunni sem nemendur fengu í Kötlusetri unnu nemendur verk undir leiðsögn Kolbrúnar Hjörleifsdóttur listakennara innblásinn af verkum Sigrúnar. Á viðburðinum voru verk nemenda til sýnis auk listaverka Sigrúnar sem fengin voru að láni. Harpa Elín og Kolbrún stýrðu stundinni og sögðu frá Sigrúnu. Í lokin sungu allir saman. Til stóð að viðburðurinn yrði stærri í sniðum og opin öllum en slíkt var ekki hægt vegna samkomutakmarkanna. Viðburðurinn var afar vel heppnaður og dæmi um farsælt samstarf skólans við Kötlusetur. Verkefnið hefur jafnframt skírskotun til Kötlu Unesco jarðvangs þar sem skólinn er einn af Geo-skólum jarðvangsins og hefur um leið, m.a. það hlutverk að miðla menningu og sögu til nemenda.

Sigrún Jónsdóttir fæddist í Vík í Mýrdal 19. ágúst 1921. Hún ólst upp í Vík í Mýrdal sem mótaði hana og þar hafði hún alltaf sínar sterku rætur.  Sigrún lauk námi frá Kvennaskólanum og síðar Kennaraskóla Íslands.  Sigrún nam síðar list í Danmörku, Svíþjóð og víðar. Sigrún helgaði sig listinni og varð ein fremsta kirkjulistakona Norðurlanda.  Hún átti alltaf sterkar taugar til sinnar heimabyggðar í Vík og ræddi oft hversu uppvaxtarárin hefðu mótað sitt líf mikið.

 

Slökkviliði Mýrdalshrepps komu og heimsóttu 3. og 4. bekk.

Ívar og Sigurður frá Slökkviliði Mýrdalshrepps komu og heimsóttu 3. og 4. bekk í dag, 6.desember í tengslum við eldvarnir sem eru alltaf mikilvægar en þó alveg sérstaklega mikilvægar í desember þegar mikið er um kertaloga, kertaskreytingar og allskonar bakstur og eldamennsku. Nemendur fengu m.a. góða fræðslu um reykskynjara, slökkvitæki, eldvarnateppi og flóttaleiðir. Einnig horfðu þeir á myndband um Loga og Glóð sem eru eldklárir aðstoðarmenn slökkviliðsins og hjálpa til við að vinna á móti Brennuvargi. Nemendur fengu bækur og endurskinsmerki að gjöf og þökkum við kærlega fyrir heimsóknina og gjafirnar. Við verðum eldklár um jólin.

Krakkarnir í fyrsta og öðrum bekk eru komin í jólaskap, það er jólaálfurinn líka sem að hefur stundum tekið á móti þeim í stofunni að undanförnu.

 

Jóladagskrá Víkurskóla 2021

Jóladagskrá 2021

Kaffihúskvöldi Víkurskóla  sem vera átti  fimmtudaginn 18. nóvember n.k. er frestað um óákveðinn tíma vegna hertra samkomutakmarkana.

Skólabúðir að Reykjum í Hrútafirði.

Dagana 18. – 22. október fóru nemendur í 6. og 7. bekk í skólabúðir að Reykjum í Hrútafirði. Þar er markmið m.a. að auka samstöðu og efla samvinnu og sjálfstæði nemanda.  Yfir daginn tóku þau þátt í fjölbreyttri dagskrá á vegum skólabúðanna svo sem heimsókn á Byggðarsafnið, náttúrufræði, fjöruferð, íþróttum og skemmtilegum leikjum. Á kvöldin voru kvöldvökur þar sem nemendur voru með ýmis skemmtiatriði. Hópurinn okkar tók þátt í hárgreiðslukeppni og sigraði hana með glæsibrag. Allir nemendurnir voru til fyrirmyndar í framkomu og námi, eignuðust góða vini og voru verulega ánægðir með dvölina.

Vinabekkurinn okkar.

Nemendur í 1.og 2. bekk skólans taka nú þátt í verkefni sem ber heitið vinabekkurinn okkar. Þau eru með þessu móti að mynda tengsl við jafnaldra sína í Laugalandsskóla í Holtum. Þetta finnst þeim afar áhugavert og verður margt í skólastarfinu mun áhugaverðara en ella, enda þarf að deila annsi mörgu með þessum vinum okkar í Laugalandsskóla. Á dögunum skrifuðu þau vinabekknum bréf og í tilefni af bleikum október voru bréfin að sjálfsögðu sett í bleik umslög. Að auki hafa þau unnið að því um nokkurt skeið að kynna fyrirvinabekknum sögu landnámsmannsins Hjörleifs Hróðmarssonar enda nam hann land á okkar svæði. Af því tilefni brugðu þau sér í gerfi Víkinga og sigldu í þeirra ímyndaða heimi til Íslands og námu land við Hjörleifshöfða.

Heimilsfang: Mánabraut 3 |  Pósthúmer: 870 Vík | Símanúmar: 487 1242 | Netfang: vikurskoli@vikurskoli.is

Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 487-1242 eða á netfangið vikurskoli@vikurskoli.is