Geðlestin í heimsókn í Víkurskóla.

Í dag fengum við heimsókn frá Geðlestinni en það er verkefni á vegum Geðhjálpar. Árið 2020 setti Geðhjálp fram 9 aðgerðir til að setja geðheilsu í forgang og eitt af áherslumálunum var setja fræðslu til ungmenna í forgang. Heimsóknin miðaðist við unglingadeildina en allir voru svo boðnir á örtónleika með Emmsjé Gauta og það var mikið fjör.

Hér er kynningartexti um þetta frábæra verkefni:

 

Markmiðið með Geðlestinni er að ræða við ungt fólk um geðheilsu og hvernig best sé að rækta hana og vernda. Lífið býður upp á allskonar áskoranir og stundum þurfum við að leita okkur aðstoðar við verkefni lífsins. Það er eðlilegasti hlutur í heimi að biðja um hjálp. Nemendur eru hvattir til þess að tjá tilfinningar sínar, spyrja spurninga og ræða við foreldra/aðstandendur eða kennara um það sem gengur á í amstri dagsins.

Það er mikilvægt að læra að stundum er lífið leiðinlegt og erfitt og það þurfi ekki alltaf að þýða eitthvað alvarlegt eða slæmt. Mótvindur verður skyndilega meðvindur og engin brekka er endalaus.

Það á að vera jafn eðlilegt að huga að geðheilsu sinni eins og líkamlegri heilsu. Það er hægt að gera með því að koma sér upp heilbrigðum venjum, líkt og að iðka þakklæti, eiga sér áhugamál, hreyfa sig, borða hollt, fá nægan svefn, treysta, eiga góða vini, rækta með sér seiglu og þrautseigju, vera umburðarlynd(ur), hjálpa öðrum, sýna tillitssemi, tjá sig svo fátt eitt sé nefnt.

Sinfóníuhljómsveit Suðurlands bauð nemendum á tónleika.

Þann 9. maí sl. fóru nemendur í 1.-6. bekk á tónleika hjá Sinfóníuhljómsveit Suðurlands. Tónleikarnir voru sameiginlegir með nemendum Kirkjubæjarskóla og fóru tónleikarnir fram í Kirkjuhvoli. Sannarlega frábært framtak og gaman að okkar nemendur fái að upplifa slíkan menningarviðburð og sjá sinfóníuhljómsveit á sviði. Dagskráin var að sjálfsögðu miðuð við aldur nemenda og í lokin sungu allir Á sprengisandi en það var einmitt ósk um að nemendur væru búnir að læra textann fyrir tónleikana. Það var blíðviðri þennan dag og eftir tónleikana bauð Gvendarkjör nemendum í ís. Kærar þakkir fyrir það.

Erasmus+ ferð til Þýskalands mars ’22

Við fórum til Þýskalands dagana 7.-11. mars í Erasmus+ verkefni sem heitir ”Fit for life”. Fyrsta daginn fórum við í félagsheimilið Bürgersaal og kynntumst  verkefninu betur. Síðan brutum við ísinn með nokkrum leikjum. Svo fengum við okkur mat í skólanum og tókum okkur frímínútur þar sem við spiluðum fótbolta. Eftir hádegi gengum við upp að kastalanum í Wörth, sem núna er dvalarheimili aldraða, og fengum svo að kynnast bænum betur. Síðan fórum við aftur út í Bügersaal og unnum þar verkefni sem fjallaði um kolefnisspor og ábyrgum neysluvenjum. Í frítímanum spiluðum við skittles sem er tegund af keila. Dagin eftir keyrðum við til Regensburg og fengum okkur stuttan göngutúr í kringum Regensburg þar sem við sáum gamlar byggingar og dómkirkju og fengum leiðsögn frá einum af þýsku kennurunum henni Karen. Svo fórum við í sögusafn sem heitir Museum of Bavarian history. Eftir það var farið í rafrænan ratleik byggður á heimsmarkmið sameinuðu þjóðanna, þar sem ratað er eftir gps og notað sérstakt app þar sem spurningar um ýmis viðfangsefni eru svaraðar á hvern gps-punkti. Að því loknu var borðaður hádegismatur og fengið sér ís. Svo fengum við frítíma til að ganga um Regensburg og fara í búðir síðan var leiðinni haldið heim og farið í félagsmiðstöð þar sem við fórum í fullt af hópleikjum. Síðasta daginn fórum við til Erding og fórum á safn sem var með sýningu um loftslagsmál og kolefnisspor og þar á eftir fengum við okkur hádegismat. Eftir mat skelltum við okkur í BMW – safnið í Munchen og skoðuðum flotta bíla auk þess sem framleiðendur voru með sýningu um það hvernig þau eru markvisst að vinna að gera framleiðslu sína umhverfisvænni.  Að lokum röltum við um Olympic park sem var byggður upp fyrir sumar ólympíuleikana 1955,  áður en var haldið heim til Wörth. Það kvöld var komið að kveðjustund þar sem við borðuðum kvöldmat saman á gistihúsinu og tókum við gjöfum. Svo lögðum við af stað snemma að morgni aftur heim til Íslands.

Arnheiður, Jóhanna Ellen, Egill 10. bekkur

Ólympíþorpið í Munchen .

Bæjarrölt í Regensburg

Fræðslu- og menningarferð.

Frábær fræðslu- og menningarferð að baki hjá nemendur í 1. – 6. bekk. Byrjuðum ferðina á því að heimsækja Lava Center á Hvolsvelli, skoðuðum þar eldfjalla- og jarðskjálftasýninguna sem var mjög áhugaverð. Því næst skoðum við hellana við Ægissíðu á Hellu þar sem við upplifðum einstakan ævintýraheim. Einnig var farið í sund á Hellu og þar var mikil gleði og kátína. Í lokin  fengum við frábærar pítsur í Árhúsi áður en við lögðum heim á leið.  Frábær ferð í alla staði bæði fróðleg og skemmtileg.

1. og 2. bekkur hafa í vetur verið í samskiptum við 1. og 2. bekk úr Laugalandsskóla í svokölluðu vinabekkjarverkefni. Þessi samskipti hafa vakið hjá þeim mikla gleði og ánægju og á dögunum kom loksins að því að bekkirnir gætu hisst. Víkurskóli heimsótti vini sína á laugalandi í síðustu viku og fóru m.a að skoða stæsta manngerða helli á Íslandi að Hellum sem að þótti heldur betur áhugaverður, einnig léku krakkarnir sér saman og enduðu svo daginn í sundi. Í liðinni viku kom svo Laugalandsskóli í heimsókn til okkar í Víkurskóla og fórum við með þeim um þorpið okkar sem að skartaði sínu fegursta í dásamlegu veðri. Við forum m.a og heimsóttum Hörpu í Kötlusetri sem að sagði okkur aðeins frá Kötlusetri og sýndi okkur svo Skaftfelling sem að þótti heldur betur áhugavert. Einnig forum við í ratleik um þorpið og Hjördís sagði öllum þjóðsöguna um Reynisdranga. Svona verkefni kemur inná annsi marga þætti skólastarfsins en hvað mikilvægast er hversu mikill styrkur það er í félagsfærni krakkana að kynnast nýjum krökkum, sýna þeim vinsemd, virðingu og hlýju sem að svo sannarlega einkenndi þessa daga. Frábært í alla staði!

Skólahreysti 2022.

Keppnislið Víkurskóla stóð sig með prýði í undanúrslitum Skólahreysti sem fram fór 27. apríl í beinni útsendingu á Rúv og hafnaði hópurinn í 4 sæti riðilsins. Stuðningslið nemenda í 7.-10. bekk fylgdi sínu liði fast eftir og lét sitt ekki eftir liggja á óhorfendapöllunum. Keppnislið Víkurskóla skipaði, Arnfríður Mára, Egill, Patrik Örn, Kristófer Ek og Stephanie Ósk. Við óskum þessum glæsilega hópi til hamingju. Þjálfari liðsins í vetur er Katrín Waagfjörð íþróttafræðingur. Það er ekki sjálfgefið að svona lítill skóli eins og okkar geti tekið þátt viðlíka keppni og att kappi við miklu fjölmennari skóla. Nemendur Víkurskóla eru í dag 57 talsins.

Röddin, upplestrarkeppni.

Þann 28. apríl fór fram lokakeppni Raddarinnar upplestrarkeppni 7. bekkinga. Keppnin fór að þessu sinni fram á Kirkjubæjarklaustri. Þar kepptu nemendur úr skólunum í Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu auk Vestmannaeyja í upplestri á texta og ljóðum. Keppendur Víkurskóla þær Íris Anna Orradóttir og Aníta Ósk Reynisdóttir  stóðu sig með sóma og Íris Anna varð í 3. sæti í þessari lokakeppni.

Vorhreinsun í Víkurskóla.

Daginn eftir vel heppnaða árshátíð Víkurskóla tóku nemendur og starfsfólk Víkurskóla sig til og fóru í allsherjar hreinsun á skólalóðinni. Eins og annars staðar í þorpinu hafði gífurlegt magn af sandi borist inn á lóðina í vetur  og því ekki vanþörf á að bregðast við. Allir stóðu sig með miklum sóma og það er öruggt að einhver tonn af sandi voru fjarlægð. Ekki spillti nú fyrir að veðrið var dásamlegt og sannarlega einn af okkar fyrstu góðu vordögum. Eftir hádegið var svo farið í leiki á útilóðinni og sundlauginni áður en farið var í langþráð páskafrí.  Það var gaman að hefja skólastarfið að nýju í dag í frábæru veðri með svona vel hreinsaða skólalóð. Myndirnar tala sínu máli.

Röddin, upplestrarkeppni Víkurskóla.

Þann 29. mars fór fram skólakeppni upplestrarkeppninnar Raddarinnar. Röddin tekur við af Stóru upplestrarkeppninni sem lauk göngu sinni á síðasta ári. Nú munu skólarnir í Rangarvalla- og Vestur Skaftafellssýslu auk Grunnskóla Vestmannaeyja sameinast um að halda árlega héraðskeppni undir nafninu Röddin.  Nemendur 7. bekkjar Víkurskóla hafa æft upplestur af kappi í vetur og stóðu sig afar vel í skólakeppninni. Það verða þær Íris Anna og Aníta Ósk sem munu lesa upp á héraðskeppninni sem haldin verður á Kirkjubæjarklaustri í lok apríl n.k. Við þökkum krökkunum í 7. bekk og umsjónarkennara þeirra, Þuríðar Lilju Valtýsdóttur kærlega fyrir flottan viðburð.

Heimilsfang: Mánabraut 3 |  Pósthúmer: 870 Vík | Símanúmar: 487 1242 | Netfang: vikurskoli@vikurskoli.is

Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 487-1242 eða á netfangið vikurskoli@vikurskoli.is