Nemendur í 5.-7. unnu skemmtilegt verkefni í íslensku þar sem þau sköpuðu persónur og bjuggu til sögur í kringum þær. Þau myndskreyttu sögurnar og fóru í heimsókn á Leikskólann Mánaland og lásu upp fyrir eldri nemendur þar. Ánægjulegt og árangursríkt verkefni fyrir báða hópa.
http://vikurskoli.is/wp-content/uploads/2019/03/vikurskoli-logo1-2.jpg00Vikurskolihttp://vikurskoli.is/wp-content/uploads/2019/03/vikurskoli-logo1-2.jpgVikurskoli2021-03-12 11:27:572021-03-12 11:27:57Heimsókn miðstigs á leikskólann Mánaland
Hún Hafdís Hanna nemandi í 3. bekk var svo heppin að vera dregin út í eldvarnargetraun Eldvarnaátaks 2020 hjá Landssambandi slökkviliða. Hún fékk að launum heimsókn í skólann frá slökkviliði Mýrdalshrepps og jafnframt viðurkenningaskjal og gjafabréf hjá spilavinum upp á 10.000,-.
Til hamingju Hafdís Hanna!
http://vikurskoli.is/wp-content/uploads/2019/03/vikurskoli-logo1-2.jpg00Vikurskolihttp://vikurskoli.is/wp-content/uploads/2019/03/vikurskoli-logo1-2.jpgVikurskoli2021-02-17 14:42:442021-02-17 14:42:44Vinningshafi í Víkurskóla
Þriðjudaginn 9. febrúar skelltum við okkur á skíði í Bláfjöll með nemendur í 7.-10. bekk. Veðrið lék við okkur og nemendur og starfsmenn skemmtu sér konunglega og áttu góðan dag saman. Á heimleið stoppuðum við á Skalla á Selfossi og borðuðum saman.
Frábær dagur í alla staði og við erum strax farin að hlakka til næstu ferðar.
Árlegt þorrablót fór fram í dag. Blótið er einn af föstum liðum skólastarfsins og haldið er fast í hefðir á þessum degi. Nemendur 10. bekkjar tóku að sér að leggja á borð fyrir blótið og gerðu það með glæsibrag. Þegar allir höfðu fengið sér góðan skammt af þorramat þá var flutt dagskrá á sal. Nemendur sungu hefðbundin þjóðleg lög við undirleik Brians Haroldssonar tónskólastjóra. Nemendaráð flutti annál ársins þar sem rifjaðir voru upp viðburðir síðasta árs í skólanum. Engum til furðu var Covid oft nefnt til sögunnar. Þá var tekið til við spil, nemendur í 5.-10. bekk spiluðu félagsvist og nemendur í 1. -4. bekk spiluðu Ólsen, Ólsen. Að aflokinni spilakeppninni var slegið upp balli á sal. Sigurvegarar í spilakeppninni voru Þau Alexandra Hrönn Ágústsdóttir í 1.bekk og Björn Vignir Ingason í 9. bekk. Virkilega vel heppnaður dagur.
Við fengum heimsókn frá lögreglunni í dag. Nemendur í öllum bekkjum fengu fræðslu um ýmislegt sem tengist umferðaröryggi einkum gangandi vegfarenda. Einnig var farið yfir reglur varðandi rafhlaupahjól. Við þökkum Söru Lind lögregluþjóni kærlega fyrir heimsóknina.
http://vikurskoli.is/wp-content/uploads/2019/03/vikurskoli-logo1-2.jpg00Vikurskolihttp://vikurskoli.is/wp-content/uploads/2019/03/vikurskoli-logo1-2.jpgVikurskoli2021-01-21 10:39:252021-01-28 11:52:38Heimsókn frá lögreglunni.
Katla jarðvangur og Víkurskóli, í samstarfi við Kötlusetur í Vík, hófu rannsóknarverkefni fyrir nemendur í Víkurskóla þann 12. janúar 2021. Verkefnið gengur út á að rannsaka strandlínu- og fjörubreytingar í Víkurfjöru á næstu árum.
Verkefnið felur í sér að nemendur í 5.-10. bekk mæla upp 6 snið í Víkurfjöru ásamt því að mæla kornastærðirnar á sandinum þar og taka ljósmyndir af formgerðunum í fjörunni. Yngstu nemendur skólans 1. -4. bekkur munu síðan stunda sjálfstæðar rannsóknir á sandinum í Víkurfjöru, dýralífinu sem þar er að finna og rannsaka rusl sem skolast þar á land.
Stefnt er að því að nemendur mæli sniðin fjórum sinnum á ári, á vorin, seinni part sumars, haustin og um veturinn, til að fá sem besta mynd á það hvernig fjaran breytist á milli árstíða. Þá er fjörukamburinn einnig mældur til að athuga hvort það mikla landbrot sem hefur átt sér stað við Vík sé enn í gangi. Með mælingu sniðanna má sjá hvort að fjaran sé að byggjast upp eða ekki, ásamt því að reikna út u.þ.b. rúmmálið sem hefur annað hvort bæst við fjöruna eða verið fjarlægt þaðan. Athuganir á kornastærðinni í fjörunni og formgerðunum munu síðan gefa hugmyndir um orkustig strandarinnar og er kjörið tækifæri til að fræða nemendur um hið síbreytilega landslag fjara og hver áhrif loftlagsbreytinga hafa á strandsvæði.
Markmiðin með rannsóknarverkefninu eru að nemendur kynnist því hvernig sé staðið að vísindalegum rannsóknum og fái að taka þátt í þeim, svo sem mælinga, söfnun upplýsinga og úrvinnslu gagna, en slík reynsla mun vonandi nýtast þeim vel í framtíðinni. Einnig að verkefnið muni auka skilning nemenda á strandumhverfum, sérstaklega sandfjörum, og hvað það er sem veldur breytingum á þeim, svo sem landrofi og vexti.
Stefnt er að því að birta niðurstöðu mælinganna einu sinni á ári og er áætlað að þær verði til sýnis í sjóminjasafninu Hafnleysu við Kötlusetur.
Það er Jóhannes Marteinn Jóhannesson jarðfræðingur hjá Kötlu jarðvangi sem stýrir verkefninu fyrir hönd Kötlu Jarðvangs í samstarfi við Kolbrúnu Hjörleifsdóttur verkefnastjóra Geo-skóla Víkurskóla. Auk þess munu allir nemendur Víkurskóla taka þátt og flest allir starfsmenn koma að verkefninu með einum eða öðrum hætti.
Víkurskóli hefur verið einn af Geo-skólum Kötlu UNESCO Global Geopark frá árinu 2017. Árlega vinna nemendur fjölbreytt verkefni í því augnamiði að tileinka sér og vinna með einkenni, sögu og jarðfræði nærumhverfisins til að efla umhverfisvitund og umhverfislæsi nemenda.
Í dag komu tveir félagar úr Björgunarsveitinni Víkverja í heimsókn til nemenda í 8.-10. bekk. Það voru þeir Einar Guðnason og Sigurður Ásgrímur Gíslason sem báðir eru fyrrum nemendur í Víkurskóla. Þeir kynntu starf sveitarinnar og sögðu frá ungliðanámskeiði sem til stendur að halda hjá sveitinni. Krakkarnir voru mjög áhugasöm og öruggt að í hópnum eru björgunarsveitarfólk framtíðarinnar. Við þökkum þeim kærlega fyrir komuna.
http://vikurskoli.is/wp-content/uploads/2019/03/vikurskoli-logo1-2.jpg00Vikurskolihttp://vikurskoli.is/wp-content/uploads/2019/03/vikurskoli-logo1-2.jpgVikurskoli2021-01-14 10:26:182021-01-14 10:26:18Heimsókn frá Björgunarsveitinni Víkverja.
Það ríkir oft mikil gleði og áhugi í stærðfræðifjöri hjá 3. – 7. bekk enda verið að vinna að skapandi verkefnum í stærðfræði á fjölbreytilegan hátt.
Síðasta viðfangsefni krakkanna var að hanna og skapa bát sem gæti siglt niður Víkuránna . Í verkefninu reyndi á útsjónasemi, samvinnu og ígrundun og var hver báturinn á fætur öðrum listalega hannaður.
Í lokin var haldin heilmikil kappsigling á Víkuránni þar sem reyndi á hæfni bátanna, sem allir náðu í mark.
Þann 8. nóvember var baráttudagur gegn einelti. Í Víkurskóla voru fjölbreytt viðfangsefni tengd umfjöllun um einelti. Starfsfólk og nemendur unnu eitt sameiginlegt verkefni sem fólst í því að hver og einn útbjó og skreytti púsl sem síðan var raðað upp í eitt stórt mynverk. Markmið verksins er að draga fram með myndrænum hætti að við erum öll hluti af einni heild og getum öll passað saman.
http://vikurskoli.is/wp-content/uploads/2019/03/vikurskoli-logo1-2.jpg00Vikurskolihttp://vikurskoli.is/wp-content/uploads/2019/03/vikurskoli-logo1-2.jpgVikurskoli2020-11-26 11:36:362020-11-26 11:36:36Í tilefni af Degi gegn einelti 8. nóvember
Hrekkjavakan var skemmtileg tilbreyting í skólastarfinu. Nornir komu ríðandi á kústi, …og breyttu nemendum í alls konar furðuverur…allir bjuggu til kóngulær, svo var lesin Draugasaga, Sigrúnar Eldjárn…við skulfum á beinunum, …en komumst svo að því að þetta var glamrið í beinagrindinni á DRAUGAGANGINUM í sögunni….
Vegna nýrrar reglugerðar heilbrigðisráðuneytisins um takmörkun á skólastarfi vegna Covid 19 þá er Víkurskóli lokaður fyrir gestakomur frá og með 3. nóvember til og með 17. nóvember n.k. Þeir sem eiga bókað viðtal eða hafa látið vita af komu sinni eru beðnir um að vera meðandlitsgrímu.
Aðgerðir Víkurskóla til að uppfylla tilmæli reglugerðarinnar verða sendar til foreldra/forráðamanna í Mentorpósti í dag 1. nóvember.
Skólastjórnendur
http://vikurskoli.is/wp-content/uploads/2019/03/vikurskoli-logo1-2.jpg00Vikurskolihttp://vikurskoli.is/wp-content/uploads/2019/03/vikurskoli-logo1-2.jpgVikurskoli2020-11-26 11:31:362020-11-26 11:31:36Orðsending vegna nýrrar reglugerðar Covid-19
Í dag var merkileg kennslustund hjá nemendum í 7.-10. bekk að tilstuðlan Kötlu jarðvangs, Reykjanes jarðvangs og Veðurstofu Íslands. Nemendur fengu kynningu og kennslu á heimasíðuna Íslensk eldjöll www.islenskeldfjoll.is sem er gagnvirk vefsjá og uppflettirit. Tilefni þessa verkefnis er alþjóðlegur dagur náttúruvár sem er 13. október. Þetta er að öllum líkindum í fyrsta skipti sem okkar nemendur eru í sameiginlegri kennslustund með nágrannaskólum okkar, Kirkjubæjarskóla og Hvolsskóla.
http://vikurskoli.is/wp-content/uploads/2019/03/vikurskoli-logo1-2.jpg00Vikurskolihttp://vikurskoli.is/wp-content/uploads/2019/03/vikurskoli-logo1-2.jpgVikurskoli2020-11-26 11:30:162020-11-26 11:30:16Kynning á gagnvirkri heimasíðu – kennslustund með tveimur öðrum skólum
Í haust voru gerðar miklar lagfæringar. Nú er óðum að komast skapandi og notalegur blær á allt. Unga listafólkið er niðursokkið í margs konar listsköpun. Þroskandi og gefandi.
Í haust fengum við góða gjöf frá einum af velunnurum skólans honum Þóri Kjartanssyni. Hann færði okkur eintak af heimildarmynd sem hann hefur gert um eldstöðina Kötlu. Það fór vel á því að fá Þóri í heimsókn í dag til að kynna myndina fyrir frumsýningu og hvað það var sem dreif hann áfram við að gera þessa mögnuðu heimildarmynd. Við þökkum Þóri og hans fjölskyldu kærlega fyrir vinarhug til skólans. Í Víkurskóla rifjum við reglulega upp hvað það er og hvað það þýðir að búa svo nálægt virkri eldstöð eins og Katla er.
Í tilefni af Bleika deginum í dag 16. október lögðu nemendur og kennarar í Víkurskóla sig fram um að klæðast einhverju bleiku eða koma með bleika fylgihluti. Bleiki dagurinn er okkur hvatning til að sýna stuðning við þá sem greinast með krabbamein og aðstandendur þeirra. Hér má sjá nemendur og kennara í 1.-2. bekk í ýmsum bleikum tónum í upphafi skóladagsins.
http://vikurskoli.is/wp-content/uploads/2019/03/vikurskoli-logo1-2.jpg00Vikurskolihttp://vikurskoli.is/wp-content/uploads/2019/03/vikurskoli-logo1-2.jpgVikurskoli2020-11-26 11:03:162020-11-26 11:03:16Bleiki dagurinn í Víkurskóla
Nemendur unglingadeildar hafa seinustu vikurnar verið að læra um lífverur í náttúrufræðinni og einn liður í þeirri kennslu er að læra að kryfja fisk.
Markmiðið með verkefninu er að nemendur fái að skoða lífveru úr íslenskri náttúrú nánar; ræða uppbyggingu lífveru og líffærafræði, hvernig útlit og líkamsbyggingu spegla lifnaðarhættir auk þess sem tilgangurinn er að efla áhuga, virkni og þáttöku nemenda í náttúrufræðinámi.
Við sendum sérstakar þakkir til Lindarfisk sem svo rausnarlega útvegaði okkur fisk til að kryfja. Myndirnar sína áhugasama nemendur í þessu flotta verkefni.
http://vikurskoli.is/wp-content/uploads/2019/03/vikurskoli-logo1-2.jpg00Vikurskolihttp://vikurskoli.is/wp-content/uploads/2019/03/vikurskoli-logo1-2.jpgVikurskoli2020-11-26 11:01:482020-11-26 11:01:48Náttúrfræði á unglingastigi
Einn af föstum liðum í skólastarfinu er að allir nemendur og starfsmenn taka þátt í Ólympíuhlaupi ÍSÍ. Að þessu sinni varð 9. október fyrir valinu og má með sanni segja að þetta hafi verið einn af dásamlegustu og veðurblíðustu dögum haustsins. Krakkarnir stóðu sig afskaplega vel. Þau gátu valið á milli þriggja vegalengda í hlaupinu, þ.e. 2,5 km, 5 km eða 10 km. Að þessu sinni gerðu 4 nemendur sér lítið fyrir og hlupu hver um sig 10 kílómetra. Alls hlupu nemendur 330 km! Með Ólympíuhlaupi ÍSÍ er leitast við að hvetja nemendur skólanna til þess að hreyfa sig reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan.
Nemendur í útivistarvali á unglingastigi hafa í haust tekist á við ýmsar áskoranir eins og að klífa fjöll, kveikja eld og grilla pylsur í hagléli. Jafnframt hafa krakkarnir fræðst um ýmislegt sem tengist því að stunda útivist. Við búum svo vel í nærumhverfi Víkurskóla að hafa aðgang að fallegum gönguleiðum og stöðum til að skoða. Hér eru nokkrar myndir sem Magga Steina kennari hópsins, tók af krökkunum.
Hvatningarverkefninu Göngum í skólann lauk formlega þann 7. október sl. á alþjóðlega ,,Göngum í skólann deginum’’. Krakkarnir í Víkurskóla voru almennt mjög dugleg í verkefninu og svo var auka hreyfingu bætt inn í skólavikuna til að koma til móts við þá sem eru í skólaakstri og ekki hafa tækifæri til að ganga í skólann. Hér er mynd af honum Jóhanni nemanda í 7. bekk sem hélt upp á alþjóðlega göngum í skólann daginn með því að hjóla í skólann hvorki meira né minna en 10 kílómetra! Vel gert hjá honum.
http://vikurskoli.is/wp-content/uploads/2019/03/vikurskoli-logo1-2.jpg00Vikurskolihttp://vikurskoli.is/wp-content/uploads/2019/03/vikurskoli-logo1-2.jpgVikurskoli2020-11-26 10:53:242020-11-26 10:53:24Alþjóðlegi göngum í skólann dagurinn 7. október
Á degi íslenskrar náttúru fóru nemendur, 1. og 2. bekkjar og gerðu náttúrulistaverk í Víkurfjöru. Á leiðinni fræddust nemendur um haustið, örnefni og það sem fyrir augu bar á leiðinni, síðan vöru sköpuð mismunandi listaverk, allt eftir innblæstri nemenda. Þau söktu sér í listsköpunina. Þegar heim var komið töluðum við um Ómar Ragnarsson, sem dagurinn er tileinkaður, en hann átti 80 ára afmæli. Nemendur 3. – 4. bekkjar fóru í útikennslustofu skólans á Syngjandanum, sögðu sögur, fræddust um Ómar og hans mikla starf í þágu íslenskrar náttúru, lagt var á ráðin um næstu útikennsluferð, sungin nokkur lög og farið í frispígolf. Þetta var góður og eftirminnilegur dagur.
Nemendur í 8.-9. bekk læra þessa dagana undir stjórn Möggu Steinu samfélagsfræðikennara þeirra um steintegundir á Íslandi og jarðvætti í Kötlu jarðvangi. Liður í þessari fræðslu var heimsókn í fræðasetrið okkar Kötlusetur þar sem Vala og Jóhannes tóku á móti krökkunum og þau fengu verklega fræðslu í að greina steintegundir.
Síðastliðinn mánudag fengum við góða gesti í skólann gegnum verkefnið List fyrir alla. Það voru þau Herdís Anna Jónsdóttir víóluleikari og Steef van Oosterhout slagverksleikari, hljóðfæraleikarar úr Sinfóníuhljómsveit Íslands sem kalla sig Dúó Stemmu. Þau spiluðu, sungu og léku á ýmis hljóðfæri, hefðbundin og heimatilbúin m.a. hrossakjálka, skyrdós og sandpappír. Sannarlega tónleikhús með fullt af spennandi hljóðum, íslenskum þulum og lögum.
http://vikurskoli.is/wp-content/uploads/2019/03/vikurskoli-logo1-2.jpg00Vikurskolihttp://vikurskoli.is/wp-content/uploads/2019/03/vikurskoli-logo1-2.jpgVikurskoli2020-11-26 10:40:062020-11-26 10:40:06List fyrir alla
http://vikurskoli.is/wp-content/uploads/2019/03/vikurskoli-logo1-2.jpg00Vikurskolihttp://vikurskoli.is/wp-content/uploads/2019/03/vikurskoli-logo1-2.jpgVikurskoli2020-11-26 10:38:042020-11-26 10:38:04Útikennsla á Syngjandanum
Allir nemendur og starfsfólk Víkurskóla fóru í árlega haustferð 8. september. Að þessu sinni var farið í vettvangsferð og berjamó upp í Hafursey. Veðrið var ágætt og allir nutu dásamlegrar útivistar. Sumir týndu alveg helling af berjum en aðrir borðuðu þau á staðnum. Markmið svona vettvangsferðar er fjölþætt og kemur inn á mjög marga þætti í áherslum Víkurskóla. Nemendur læra um náttúru nærumhverfisins og hvernig ber að umgangast hana sem er partur af Jarðvangsskólanum, nemendur blandast þvert á aldur í skemmtilegri samveru sem er það sem þau sjálf hafa óskað eftir og svo síðast en ekki síst er svona ferð mikilvæg fyrir Heilsueflandi skólastarf.
Dagur læsis var 8. september sl. að því tilefni fóru nemendur í 3.-4. bekk í heimsókn með Hrund umsjónarkennara á leikskólann Mánaland og nemendur lásu fyrir leikskólabörnin. Báðir hópar höfðu mjög gaman af heimsókninni eins og sjá má á af myndunum. Læsi er grundvöllur alls skólastarfs. Í Víkurskóla er unnið markvisst með lestur. Í skólanum er lesið með fjölbreyttum hætti eina kennslustund á dag, allir bekkir á sama tíma. Þetta er rúllandi kerfi þannig að ekki er alltaf um sömu kennslustund að ræða. Krakkarnir eru mjög áhugsöm í lestrarnáminu en jafnframt er nauðsynlegt að foreldrar og heimili standi þétt með skólanum í að gera krakkana fluglæsa.
Í Víkurskóla kemur hluti nemenda með skólabíl á morgnana og hafa því ekki tök á því að ganga í skólann eins og krakkarnir í þorpinu. En hann Egill Atlason hugsaði út fyrir kassann og lét sig ekki muna um að ganga í skólann frá heimili sínu að morgni 3. september sl! Þessi spotti er hvorki meira né minna en 10 kílómetrar. Aldeilis vel gert. Verkefnið Göngum í skólann stendur til 7. október. Við hvetjum nemendur og foreldra til að taka virkan þátt í þessu skemmtilega verkefni. Í skólanum bætum við við 20 mínútna hreyfingu þrisvar í viku.
http://vikurskoli.is/wp-content/uploads/2019/03/vikurskoli-logo1-2.jpg00Vikurskolihttp://vikurskoli.is/wp-content/uploads/2019/03/vikurskoli-logo1-2.jpgVikurskoli2020-11-26 10:30:412020-11-26 10:30:41Göngum í skólann
Í dag 2. september hófst á landsvísu lýðheilsuverkefnið Göngum í skólann. Víkurskóli mun taka þátt af krafti eins og síðustu ár. Af þessu tilefni hittust allir nemendur og starfsfólk á sal þar sem verkefnið var formlega sett af stað og við notuðum tækifærið til að draga nýjan fána, Heilsueflandi skóli að húni. Fáninn barst okkur síðastliðið vor sem viðurkenning á því að Víkurskóli hefur náð ákveðnum markmiðum í verkefninu Heilsueflandi skóli. Það voru þau Urður Ósk nemandi í 10. bekk og Eiður Árni nemandi í 1. bekk sem drógu fánann að húni. Að þessari athöfn lokinni fór allur skólinn saman í íþróttahúsið þar sem farið var í skemmtilegt leikjafjör.
http://vikurskoli.is/wp-content/uploads/2019/03/vikurskoli-logo1-2.jpg00Vikurskolihttp://vikurskoli.is/wp-content/uploads/2019/03/vikurskoli-logo1-2.jpgVikurskoli2020-11-26 10:27:322020-11-26 10:27:32Göngum í skólann
Í gær var árleg skólakeppni 7. bekkinga í Stóru-upplestrarkeppninni. Krakkarnir stóðu sig með sóma og dómarar keppninnar stóðu frammi fyrir vandasömu verkefni að velja úr hópnum tvo sigurvegara. En að þessu sinni voru það Arnfríður Mára Þráinsdóttir og Helga Guðrún Ólafsdóttir sem voru hlutskarpastar. Við óskum þeim til hamingju og vitum að þær eiga eftir að standa sig vel í héraðskeppninni sem haldin verður 8. apríl n.k. á Hvolsvelli.
Á myndinni má sjá Þorgerði Hlín Gísladóttur umsjónarkennara 7.-8. bekkjar ásamt keppendum.
Í þessari viku fór valhópurinn í forritun í íþróttahúsið og æfði forritun án tölvu. Sett var upp þrautabraut þar sem tveir og tveir unnu saman, annar með bundið fyrir augun og hinn leiðbeindi í gegnum þrautina með einföldum skilaboðum. Verkefnið reyndi á samvinnu, traust og nákvæmni alveg eins og nauðsynlegt er þegar unnið er í forritun fyrir tölvuleiki og smáforrit.
http://vikurskoli.is/wp-content/uploads/2019/03/vikurskoli-logo1-2.jpg00Ívar Páll Bjartmarssonhttp://vikurskoli.is/wp-content/uploads/2019/03/vikurskoli-logo1-2.jpgÍvar Páll Bjartmarsson2019-03-07 08:06:192019-03-20 08:10:05Það er fjör í forritun!
Heimsókn miðstigs á leikskólann Mánaland
/in frettir /by VikurskoliNemendur í 5.-7. unnu skemmtilegt verkefni í íslensku þar sem þau sköpuðu persónur og bjuggu til sögur í kringum þær. Þau myndskreyttu sögurnar og fóru í heimsókn á Leikskólann Mánaland og lásu upp fyrir eldri nemendur þar. Ánægjulegt og árangursríkt verkefni fyrir báða hópa.
Vinningshafi í Víkurskóla
/in frettir /by VikurskoliHún Hafdís Hanna nemandi í 3. bekk var svo heppin að vera dregin út í eldvarnargetraun Eldvarnaátaks 2020 hjá Landssambandi slökkviliða. Hún fékk að launum heimsókn í skólann frá slökkviliði Mýrdalshrepps og jafnframt viðurkenningaskjal og gjafabréf hjá spilavinum upp á 10.000,-.
Til hamingju Hafdís Hanna!
Skíðaferð
/in frettir /by VikurskoliÞriðjudaginn 9. febrúar skelltum við okkur á skíði í Bláfjöll með nemendur í 7.-10. bekk. Veðrið lék við okkur og nemendur og starfsmenn skemmtu sér konunglega og áttu góðan dag saman. Á heimleið stoppuðum við á Skalla á Selfossi og borðuðum saman.
Frábær dagur í alla staði og við erum strax farin að hlakka til næstu ferðar.
Þorrablót Víkurskóla 2021
/in frettir /by VikurskoliÁrlegt þorrablót fór fram í dag. Blótið er einn af föstum liðum skólastarfsins og haldið er fast í hefðir á þessum degi. Nemendur 10. bekkjar tóku að sér að leggja á borð fyrir blótið og gerðu það með glæsibrag. Þegar allir höfðu fengið sér góðan skammt af þorramat þá var flutt dagskrá á sal. Nemendur sungu hefðbundin þjóðleg lög við undirleik Brians Haroldssonar tónskólastjóra. Nemendaráð flutti annál ársins þar sem rifjaðir voru upp viðburðir síðasta árs í skólanum. Engum til furðu var Covid oft nefnt til sögunnar. Þá var tekið til við spil, nemendur í 5.-10. bekk spiluðu félagsvist og nemendur í 1. -4. bekk spiluðu Ólsen, Ólsen. Að aflokinni spilakeppninni var slegið upp balli á sal. Sigurvegarar í spilakeppninni voru Þau Alexandra Hrönn Ágústsdóttir í 1.bekk og Björn Vignir Ingason í 9. bekk. Virkilega vel heppnaður dagur.
Fleiri myndir.
Heimsókn frá lögreglunni.
/0 Comments/in frettir /by VikurskoliVið fengum heimsókn frá lögreglunni í dag. Nemendur í öllum bekkjum fengu fræðslu um ýmislegt sem tengist umferðaröryggi einkum gangandi vegfarenda. Einnig var farið yfir reglur varðandi rafhlaupahjól. Við þökkum Söru Lind lögregluþjóni kærlega fyrir heimsóknina.
Rannsóknarverkefni í Víkurskóla – Katla jarðvangur.
/0 Comments/in frettir /by VikurskoliKatla jarðvangur og Víkurskóli, í samstarfi við Kötlusetur í Vík, hófu rannsóknarverkefni fyrir nemendur í Víkurskóla þann 12. janúar 2021. Verkefnið gengur út á að rannsaka strandlínu- og fjörubreytingar í Víkurfjöru á næstu árum.
Verkefnið felur í sér að nemendur í 5.-10. bekk mæla upp 6 snið í Víkurfjöru ásamt því að mæla kornastærðirnar á sandinum þar og taka ljósmyndir af formgerðunum í fjörunni. Yngstu nemendur skólans 1. -4. bekkur munu síðan stunda sjálfstæðar rannsóknir á sandinum í Víkurfjöru, dýralífinu sem þar er að finna og rannsaka rusl sem skolast þar á land.
Stefnt er að því að nemendur mæli sniðin fjórum sinnum á ári, á vorin, seinni part sumars, haustin og um veturinn, til að fá sem besta mynd á það hvernig fjaran breytist á milli árstíða. Þá er fjörukamburinn einnig mældur til að athuga hvort það mikla landbrot sem hefur átt sér stað við Vík sé enn í gangi. Með mælingu sniðanna má sjá hvort að fjaran sé að byggjast upp eða ekki, ásamt því að reikna út u.þ.b. rúmmálið sem hefur annað hvort bæst við fjöruna eða verið fjarlægt þaðan. Athuganir á kornastærðinni í fjörunni og formgerðunum munu síðan gefa hugmyndir um orkustig strandarinnar og er kjörið tækifæri til að fræða nemendur um hið síbreytilega landslag fjara og hver áhrif loftlagsbreytinga hafa á strandsvæði.
Markmiðin með rannsóknarverkefninu eru að nemendur kynnist því hvernig sé staðið að vísindalegum rannsóknum og fái að taka þátt í þeim, svo sem mælinga, söfnun upplýsinga og úrvinnslu gagna, en slík reynsla mun vonandi nýtast þeim vel í framtíðinni. Einnig að verkefnið muni auka skilning nemenda á strandumhverfum, sérstaklega sandfjörum, og hvað það er sem veldur breytingum á þeim, svo sem landrofi og vexti.
Stefnt er að því að birta niðurstöðu mælinganna einu sinni á ári og er áætlað að þær verði til sýnis í sjóminjasafninu Hafnleysu við Kötlusetur.
Það er Jóhannes Marteinn Jóhannesson jarðfræðingur hjá Kötlu jarðvangi sem stýrir verkefninu fyrir hönd Kötlu Jarðvangs í samstarfi við Kolbrúnu Hjörleifsdóttur verkefnastjóra Geo-skóla Víkurskóla. Auk þess munu allir nemendur Víkurskóla taka þátt og flest allir starfsmenn koma að verkefninu með einum eða öðrum hætti.
Víkurskóli hefur verið einn af Geo-skólum Kötlu UNESCO Global Geopark frá árinu 2017. Árlega vinna nemendur fjölbreytt verkefni í því augnamiði að tileinka sér og vinna með einkenni, sögu og jarðfræði nærumhverfisins til að efla umhverfisvitund og umhverfislæsi nemenda.
Fleiri myndir.
Heimsókn frá Björgunarsveitinni Víkverja.
/0 Comments/in frettir /by VikurskoliÍ dag komu tveir félagar úr Björgunarsveitinni Víkverja í heimsókn til nemenda í 8.-10. bekk. Það voru þeir Einar Guðnason og Sigurður Ásgrímur Gíslason sem báðir eru fyrrum nemendur í Víkurskóla. Þeir kynntu starf sveitarinnar og sögðu frá ungliðanámskeiði sem til stendur að halda hjá sveitinni. Krakkarnir voru mjög áhugasöm og öruggt að í hópnum eru björgunarsveitarfólk framtíðarinnar. Við þökkum þeim kærlega fyrir komuna.
Stærðfræðifjör hjá 3. – 7. bekk
/0 Comments/in frettir /by VikurskoliÞað ríkir oft mikil gleði og áhugi í stærðfræðifjöri hjá 3. – 7. bekk enda verið að vinna að skapandi verkefnum í stærðfræði á fjölbreytilegan hátt.
Síðasta viðfangsefni krakkanna var að hanna og skapa bát sem gæti siglt niður Víkuránna . Í verkefninu reyndi á útsjónasemi, samvinnu og ígrundun og var hver báturinn á fætur öðrum listalega hannaður.
Í lokin var haldin heilmikil kappsigling á Víkuránni þar sem reyndi á hæfni bátanna, sem allir náðu í mark.
Fleiri myndir.
Í tilefni af Degi gegn einelti 8. nóvember
/0 Comments/in frettir /by VikurskoliÞann 8. nóvember var baráttudagur gegn einelti. Í Víkurskóla voru fjölbreytt viðfangsefni tengd umfjöllun um einelti. Starfsfólk og nemendur unnu eitt sameiginlegt verkefni sem fólst í því að hver og einn útbjó og skreytti púsl sem síðan var raðað upp í eitt stórt mynverk. Markmið verksins er að draga fram með myndrænum hætti að við erum öll hluti af einni heild og getum öll passað saman.
Hrekkjavakan
/0 Comments/in frettir /by VikurskoliHrekkjavakan var skemmtileg tilbreyting í skólastarfinu. Nornir komu ríðandi á kústi, …og breyttu nemendum í alls konar furðuverur…allir bjuggu til kóngulær, svo var lesin Draugasaga, Sigrúnar Eldjárn…við skulfum á beinunum, …en komumst svo að því að þetta var glamrið í beinagrindinni á DRAUGAGANGINUM í sögunni….
Orðsending vegna nýrrar reglugerðar Covid-19
/0 Comments/in frettir /by VikurskoliVegna nýrrar reglugerðar heilbrigðisráðuneytisins um takmörkun á skólastarfi vegna Covid 19 þá er Víkurskóli lokaður fyrir gestakomur frá og með 3. nóvember til og með 17. nóvember n.k. Þeir sem eiga bókað viðtal eða hafa látið vita af komu sinni eru beðnir um að vera með andlitsgrímu.
Aðgerðir Víkurskóla til að uppfylla tilmæli reglugerðarinnar verða sendar til foreldra/forráðamanna í Mentorpósti í dag 1. nóvember.
Skólastjórnendur
Kynning á gagnvirkri heimasíðu – kennslustund með tveimur öðrum skólum
/0 Comments/in frettir /by VikurskoliÍ dag var merkileg kennslustund hjá nemendum í 7.-10. bekk að tilstuðlan Kötlu jarðvangs, Reykjanes jarðvangs og Veðurstofu Íslands. Nemendur fengu kynningu og kennslu á heimasíðuna Íslensk eldjöll www.islenskeldfjoll.is sem er gagnvirk vefsjá og uppflettirit. Tilefni þessa verkefnis er alþjóðlegur dagur náttúruvár sem er 13. október. Þetta er að öllum líkindum í fyrsta skipti sem okkar nemendur eru í sameiginlegri kennslustund með nágrannaskólum okkar, Kirkjubæjarskóla og Hvolsskóla.
Listakotið
/0 Comments/in frettir /by VikurskoliÍ haust voru gerðar miklar lagfæringar. Nú er óðum að komast skapandi og notalegur blær á allt. Unga listafólkið er niðursokkið í margs konar listsköpun. Þroskandi og gefandi.
Kötludagur – Kötlusögur
/0 Comments/in frettir /by VikurskoliÍ haust fengum við góða gjöf frá einum af velunnurum skólans honum Þóri Kjartanssyni. Hann færði okkur eintak af heimildarmynd sem hann hefur gert um eldstöðina Kötlu. Það fór vel á því að fá Þóri í heimsókn í dag til að kynna myndina fyrir frumsýningu og hvað það var sem dreif hann áfram við að gera þessa mögnuðu heimildarmynd. Við þökkum Þóri og hans fjölskyldu kærlega fyrir vinarhug til skólans. Í Víkurskóla rifjum við reglulega upp hvað það er og hvað það þýðir að búa svo nálægt virkri eldstöð eins og Katla er.
Bleiki dagurinn í Víkurskóla
/0 Comments/in frettir /by VikurskoliÍ tilefni af Bleika deginum í dag 16. október lögðu nemendur og kennarar í Víkurskóla sig fram um að klæðast einhverju bleiku eða koma með bleika fylgihluti. Bleiki dagurinn er okkur hvatning til að sýna stuðning við þá sem greinast með krabbamein og aðstandendur þeirra. Hér má sjá nemendur og kennara í 1.-2. bekk í ýmsum bleikum tónum í upphafi skóladagsins.
Náttúrfræði á unglingastigi
/0 Comments/in frettir /by VikurskoliNemendur unglingadeildar hafa seinustu vikurnar verið að læra um lífverur í náttúrufræðinni og einn liður í þeirri kennslu er að læra að kryfja fisk.
Markmiðið með verkefninu er að nemendur fái að skoða lífveru úr íslenskri náttúrú nánar; ræða uppbyggingu lífveru og líffærafræði, hvernig útlit og líkamsbyggingu spegla lifnaðarhættir auk þess sem tilgangurinn er að efla áhuga, virkni og þáttöku nemenda í náttúrufræðinámi.
Við sendum sérstakar þakkir til Lindarfisk sem svo rausnarlega útvegaði okkur fisk til að kryfja. Myndirnar sína áhugasama nemendur í þessu flotta verkefni.
Victoria Reinholdsdóttir náttúrufræðikennari
Fleiri Myndir
Ólympíuhlaup ÍSÍ
/0 Comments/in frettir /by VikurskoliEinn af föstum liðum í skólastarfinu er að allir nemendur og starfsmenn taka þátt í Ólympíuhlaupi ÍSÍ. Að þessu sinni varð 9. október fyrir valinu og má með sanni segja að þetta hafi verið einn af dásamlegustu og veðurblíðustu dögum haustsins. Krakkarnir stóðu sig afskaplega vel. Þau gátu valið á milli þriggja vegalengda í hlaupinu, þ.e. 2,5 km, 5 km eða 10 km. Að þessu sinni gerðu 4 nemendur sér lítið fyrir og hlupu hver um sig 10 kílómetra. Alls hlupu nemendur 330 km! Með Ólympíuhlaupi ÍSÍ er leitast við að hvetja nemendur skólanna til þess að hreyfa sig reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan.
Fleiri Myndir.
Útivistarval
/0 Comments/in frettir /by VikurskoliNemendur í útivistarvali á unglingastigi hafa í haust tekist á við ýmsar áskoranir eins og að klífa fjöll, kveikja eld og grilla pylsur í hagléli. Jafnframt hafa krakkarnir fræðst um ýmislegt sem tengist því að stunda útivist. Við búum svo vel í nærumhverfi Víkurskóla að hafa aðgang að fallegum gönguleiðum og stöðum til að skoða. Hér eru nokkrar myndir sem Magga Steina kennari hópsins, tók af krökkunum.
Fleiri myndir.
Alþjóðlegi göngum í skólann dagurinn 7. október
/0 Comments/in frettir /by VikurskoliHvatningarverkefninu Göngum í skólann lauk formlega þann 7. október sl. á alþjóðlega ,,Göngum í skólann deginum’’. Krakkarnir í Víkurskóla voru almennt mjög dugleg í verkefninu og svo var auka hreyfingu bætt inn í skólavikuna til að koma til móts við þá sem eru í skólaakstri og ekki hafa tækifæri til að ganga í skólann. Hér er mynd af honum Jóhanni nemanda í 7. bekk sem hélt upp á alþjóðlega göngum í skólann daginn með því að hjóla í skólann hvorki meira né minna en 10 kílómetra! Vel gert hjá honum.
Stærðfræðifjör í 3.-7. bekk.
/0 Comments/in frettir /by VikurskoliReglulega hittast nemendur þvert á aldur og námshópa og vinna skapandi verkefni í stærðfræði. Hér gefur að líta myndir frá síðasta stærðfræðifjöri.
Fleiri myndir
Dagur íslenskrar náttúru
/0 Comments/in frettir /by VikurskoliÁ degi íslenskrar náttúru fóru nemendur, 1. og 2. bekkjar og gerðu náttúrulistaverk í Víkurfjöru. Á leiðinni fræddust nemendur um haustið, örnefni og það sem fyrir augu bar á leiðinni, síðan vöru sköpuð mismunandi listaverk, allt eftir innblæstri nemenda. Þau söktu sér í listsköpunina. Þegar heim var komið töluðum við um Ómar Ragnarsson, sem dagurinn er tileinkaður, en hann átti 80 ára afmæli. Nemendur 3. – 4. bekkjar fóru í útikennslustofu skólans á Syngjandanum, sögðu sögur, fræddust um Ómar og hans mikla starf í þágu íslenskrar náttúru, lagt var á ráðin um næstu útikennsluferð, sungin nokkur lög og farið í frispígolf. Þetta var góður og eftirminnilegur dagur.
Fleiri Myndir
Heimsókn 8.-9. bekkjar í Kötlusetur
/0 Comments/in frettir /by VikurskoliNemendur í 8.-9. bekk læra þessa dagana undir stjórn Möggu Steinu samfélagsfræðikennara þeirra um steintegundir á Íslandi og jarðvætti í Kötlu jarðvangi. Liður í þessari fræðslu var heimsókn í fræðasetrið okkar Kötlusetur þar sem Vala og Jóhannes tóku á móti krökkunum og þau fengu verklega fræðslu í að greina steintegundir.
Fleiri myndir
List fyrir alla
/0 Comments/in frettir /by VikurskoliSíðastliðinn mánudag fengum við góða gesti í skólann gegnum verkefnið List fyrir alla. Það voru þau Herdís Anna Jónsdóttir víóluleikari og Steef van Oosterhout slagverksleikari, hljóðfæraleikarar úr Sinfóníuhljómsveit Íslands sem kalla sig Dúó Stemmu. Þau spiluðu, sungu og léku á ýmis hljóðfæri, hefðbundin og heimatilbúin m.a. hrossakjálka, skyrdós og sandpappír. Sannarlega tónleikhús með fullt af spennandi hljóðum, íslenskum þulum og lögum.
Fleiri myndir
Útikennsla á Syngjandanum
/0 Comments/in frettir /by VikurskoliNemendur í 1.-2. bekk fóru í tónmenntatíma í útikennslustofu skólans á Syngjandanum í vikunni. Blíðskaparveður og kjörið að hlusta á náttúruhljóðin.
Fleiri myndir
Haustlitaferð Víkurskóla
/0 Comments/in frettir /by VikurskoliAllir nemendur og starfsfólk Víkurskóla fóru í árlega haustferð 8. september. Að þessu sinni var farið í vettvangsferð og berjamó upp í Hafursey. Veðrið var ágætt og allir nutu dásamlegrar útivistar. Sumir týndu alveg helling af berjum en aðrir borðuðu þau á staðnum. Markmið svona vettvangsferðar er fjölþætt og kemur inn á mjög marga þætti í áherslum Víkurskóla. Nemendur læra um náttúru nærumhverfisins og hvernig ber að umgangast hana sem er partur af Jarðvangsskólanum, nemendur blandast þvert á aldur í skemmtilegri samveru sem er það sem þau sjálf hafa óskað eftir og svo síðast en ekki síst er svona ferð mikilvæg fyrir Heilsueflandi skólastarf.
Fleiri Myndir
Dagur læsis
/0 Comments/in frettir /by VikurskoliDagur læsis var 8. september sl. að því tilefni fóru nemendur í 3.-4. bekk í heimsókn með Hrund umsjónarkennara á leikskólann Mánaland og nemendur lásu fyrir leikskólabörnin. Báðir hópar höfðu mjög gaman af heimsókninni eins og sjá má á af myndunum. Læsi er grundvöllur alls skólastarfs. Í Víkurskóla er unnið markvisst með lestur. Í skólanum er lesið með fjölbreyttum hætti eina kennslustund á dag, allir bekkir á sama tíma. Þetta er rúllandi kerfi þannig að ekki er alltaf um sömu kennslustund að ræða. Krakkarnir eru mjög áhugsöm í lestrarnáminu en jafnframt er nauðsynlegt að foreldrar og heimili standi þétt með skólanum í að gera krakkana fluglæsa.
Göngum í skólann
/0 Comments/in frettir /by VikurskoliÍ Víkurskóla kemur hluti nemenda með skólabíl á morgnana og hafa því ekki tök á því að ganga í skólann eins og krakkarnir í þorpinu. En hann Egill Atlason hugsaði út fyrir kassann og lét sig ekki muna um að ganga í skólann frá heimili sínu að morgni 3. september sl! Þessi spotti er hvorki meira né minna en 10 kílómetrar. Aldeilis vel gert. Verkefnið Göngum í skólann stendur til 7. október. Við hvetjum nemendur og foreldra til að taka virkan þátt í þessu skemmtilega verkefni. Í skólanum bætum við við 20 mínútna hreyfingu þrisvar í viku.
Göngum í skólann
/0 Comments/in frettir /by VikurskoliÍ dag 2. september hófst á landsvísu lýðheilsuverkefnið Göngum í skólann. Víkurskóli mun taka þátt af krafti eins og síðustu ár. Af þessu tilefni hittust allir nemendur og starfsfólk á sal þar sem verkefnið var formlega sett af stað og við notuðum tækifærið til að draga nýjan fána, Heilsueflandi skóli að húni. Fáninn barst okkur síðastliðið vor sem viðurkenning á því að Víkurskóli hefur náð ákveðnum markmiðum í verkefninu Heilsueflandi skóli. Það voru þau Urður Ósk nemandi í 10. bekk og Eiður Árni nemandi í 1. bekk sem drógu fánann að húni. Að þessari athöfn lokinni fór allur skólinn saman í íþróttahúsið þar sem farið var í skemmtilegt leikjafjör.
Stóra upplestrarkeppnin í Víkurskóla 2019
/0 Comments/in frettir /by Ívar Páll BjartmarssonÍ gær var árleg skólakeppni 7. bekkinga í Stóru-upplestrarkeppninni. Krakkarnir stóðu sig með sóma og dómarar keppninnar stóðu frammi fyrir vandasömu verkefni að velja úr hópnum tvo sigurvegara. En að þessu sinni voru það Arnfríður Mára Þráinsdóttir og Helga Guðrún Ólafsdóttir sem voru hlutskarpastar. Við óskum þeim til hamingju og vitum að þær eiga eftir að standa sig vel í héraðskeppninni sem haldin verður 8. apríl n.k. á Hvolsvelli.
Á myndinni má sjá Þorgerði Hlín Gísladóttur umsjónarkennara 7.-8. bekkjar ásamt keppendum.
Það er fjör í forritun!
/0 Comments/in frettir /by Ívar Páll BjartmarssonÍ þessari viku fór valhópurinn í forritun í íþróttahúsið og æfði forritun án tölvu. Sett var upp þrautabraut þar sem tveir og tveir unnu saman, annar með bundið fyrir augun og hinn leiðbeindi í gegnum þrautina með einföldum skilaboðum. Verkefnið reyndi á samvinnu, traust og nákvæmni alveg eins og nauðsynlegt er þegar unnið er í forritun fyrir tölvuleiki og smáforrit.