Víkurskóli sími : 487-1242 netfang : vikurskoli@vikurskoli.is / Skólabílstjórar Ingi Már : 894-9422 – Hjördís Rut: 861-0294
Heimilsfang: Mánabraut 3 | Pósthúmer: 870 Vík | Símanúmar: 487 1242 | Netfang: vikurskoli@vikurskoli.is
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 487-1242 eða á netfangið vikurskoli@vikurskoli.is
Kaffihúsakvöld 2023
/in frettir /by kennariEinn af föstu póstum skólastarfsins er kaffihúskvöld Víkurskóla í tilefni af Degi íslenskrar tungu. Að þessu sinni kom Bergrún Íris Sævarsdóttir barnabókahöfundur og myndskreytir til okkar. Hún las úr bókum sínum en hún leggur áherslu á að semja bækur fyrir mismunandi áhugasvið barna enda eins og hún segir krakkarnir eiga líka að geta valið sér bókmenntategundir eins og fullorðnir.
Nemendur Víkurskóla tóku einnig þátt í kvöldinu, nemendur 7. bekkjar lásu upp ljóð eftir Jónas Hallgrímsson í tilefni af því að æfingatímabil fyrir upplestrarkeppnina Röddina hefst á þessum degi. Kór Tónskóla Mýrdælinga söng og var þetta í annað skiptið sem þessi glænýi barnakór kom fram undir stjórn Alexöndru Chernyshovu. Síðast en ekki síst þá tóku allir nemendur skólans þátt í að baka fyrir kaffihúsið en hún Victoria Reinholdsdóttir töfraði fram glæsilegt kaffihlaðborð með nemendum. Á veggjum skólans gaf að líta verkefni sem unniðhefur verið að í haust, m.a. stórt þemaverkefni nemenda í 2.-6. bekk sem fjallaði um Fugla og gróðurfar í Mýrdalshreppi. Að venju var húsfyllir á þessum viðburði.
Tombóla í Víkurskóla fimmtudaginn 23. nóvember
/in frettir /by kennariKrakkarnir í 5.-6. bekk Víkurskóla ætla halda tombólu til styrktar Björgunarsveitinni í Vík
Kaffihúskvöld 2023
/in frettir /by kennariBleiki dagurinn
/in frettir /by kennariÁ Bleika deginum hvetjum við alla til að vera bleik – fyrir okkur öll bera slaufuna, klæðast bleiku og lýsa skammdegið upp í bleikum ljóma svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein finni stuðning okkar og samstöðu. Víkurskóli tekur auðvitað þátt.
Bleiki dagurinn föstudaginn 20. október 2023!
Við fengum gjöf
/in frettir /by kennariÞær mæðgur Margrét og Sif á Hótel Dyrhólaey komu færandi hendi á dögunum með glænýja og fína saumavél sem þær gáfu skólanum. Það er ómetanlegt fyrir skólann að eiga svona velunnara. Kærar þakkir
!
Dans, dans, dans
/in frettir /by kennariFastir liðir í skólastarfinu og námi nemenda er að læra grunn í dansi. Við fáum Jón Pétur til okkar tvisvar yfir skólaárið sem er ómetanlegt. Að þessu sinn fór opna æfingin fram í Leikskálum þar sem fjölskyldum nemenda var boðið að koma og fylgjast með og taka þátt í skemmtilegu balli í lokin.
Andleg og líkamlega heilsa, fyrirlestur fimmtudaginn12. október klukkan 17
/in frettir /by kennariNæstkomandi fimmtudag fáum við til okkar áhugaverðan fyrirlestur fyrir allt skólasamfélagið. Í þessum fyrirlestri fer Einar Örn sjúkraþjálfari yfir mikilvægi hreyfingar og réttrar líkamsbeitingar þegar kemur að líkamlegri heilsu barna og unglinga. Einnig fer hann yfir áhrif orkudrykkjaneyslu á svefn og hversu skaðleg mikil neysla á þessum drykkjum getur verið.
Margrét Lára sálfræðingur og íþróttafræðingur fer yfir nokkra þætti sem að nemendur geta nýtt sér til að auka andlegt heilbrigði sitt. Hvernig nemendur geta byggt upp sjálfsmynd sína og verið þar með betur undirbúin til að takast á við streitu, mótlæti eða erfiðleika í leik og starfi. Einnig fer Margrét Lára yfir mikilvægi svefns og aðferðir til að auka svefngæði.
Þessi viðburður er samstarfsverkefni Skólaráðs og Foreldrafélags Víkurskóla.