Þjóðlegir dagar 2026
Dagana 22.-28. janúar verða þjóðlegir dagar í Víkurskóla. Þá verða unnin þemaverkefni út frá ljóðinu ÞORRAÞRÆL. Þessa vikuna er janframt dansnámskeið í gangi skólanum.
Svona lítur dagskráin út, myndir koma svo síðar.
22. janúar – Opin dansæfing í íþróttahúsinu kl 12:30.
Foreldrar/forráðmenn velkomnir.
23. janúar – Lopapeysudagur – Bóndadagur – söngur á sal kl 9:00
26. janúar – Þemaverkefnið Þorraþræll útbúið í holi skólans. Kynning á vísubotnakeppni.
27. janúar – Ljóð, klippimyndir, málun og önnur sköpun sett inn á listaverkið.
28. janúar – Hefðbundið þorrablót Víkurskóla, þorramatur, annáll, söngur og spil. úrslit
vísubotnakeppninnar kynnt. Þorrablótsdagur er betrifatadagur.
Allir námshópar vinna að sérstökum verkefnum tengdum Þorraþræl:
- 1-3. bekkur – túlkar veturinn, kuldann og veðrið.
- 4-6. bekkur – túlkar persónur Þorraþræls, samvinnu, erfiði, húsakynni og mat.
- 7-10. bekkur: túlkun og tenging við samtímann.





