Víkingaþema
/in frettir /by Vikurskoli
Krakkarnir í 2. og 3. bekk hafa síðust vikur lært fjölmargt um landnám Ísland og Víkingaöld. Krakkarnir hafa skyggnst inn í daglegt líf landnámsfólks, lært um stéttaskiptingu, hvernig landsvæði hentaði best til búsetu, tómstundir, siði, fatnað og skart, mat og auðvitað um hina ýmsu landsnámsmenn- og konur. Eftir skartgripagerð, lestur, grúsk, teiknivinnu og fleira fórum við í Víkurfjöru og útbjuggum í sameiningu landnámsbæi. Mynduð voru fjöll, tún, kartöflugarðar, skálar, skip og varnargarðar og rúsínan í pylsuendanum var að finna öndvegissúlu.
Röddin, upplestrarkeppni 7. bekkinga
/in frettir /by kennari

Skólakeppni Raddarinnar, upplestarkeppni 7. bekkinga fór fram 9. mars. Markmið keppninnar er að þjálfa vandaðan og áheyrilegan upplestur. Valdir voru keppendur til að taka þátt í héraðskeppni Raddarinnar sem verður haldin að þessu sinni í okkar heimabyggð 14. apríl n.k. Það voru þær Harpa Sóllilja Ólafsdóttir og Michalina Rutkowska sem voru hlutskarpastar og Gréta Björk Einarsdóttir verður til vara.
Heimilsfang: Mánabraut 3 | Pósthúmer: 870 Vík | Símanúmar: 487 1242 | Netfang: vikurskoli@vikurskoli.is
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 487-1242 eða á netfangið vikurskoli@vikurskoli.is















