Alþjóðlegi göngum í skólann dagurinn 7. október
Hvatningarverkefninu Göngum í skólann lauk formlega þann 7. október sl. á alþjóðlega ,,Göngum í skólann deginum’’. Krakkarnir í Víkurskóla voru almennt mjög dugleg í verkefninu og svo var auka hreyfingu bætt inn í skólavikuna til að koma til móts við þá sem eru í skólaakstri og ekki hafa tækifæri til að ganga í skólann. Hér er mynd af honum Jóhanni nemanda í 7. bekk sem hélt upp á alþjóðlega göngum í skólann daginn með því að hjóla í skólann hvorki meira né minna en 10 kílómetra! Vel gert hjá honum.