Við fengum gjöf
Þær mæðgur Margrét og Sif á Hótel Dyrhólaey komu færandi hendi á dögunum með glænýja og fína saumavél sem þær gáfu skólanum. Það er ómetanlegt fyrir skólann að eiga svona velunnara. Kærar þakkir !
This author has yet to write their bio.Meanwhile lets just say that we are proud kennari contributed a whooping 30 entries.
Þær mæðgur Margrét og Sif á Hótel Dyrhólaey komu færandi hendi á dögunum með glænýja og fína saumavél sem þær gáfu skólanum. Það er ómetanlegt fyrir skólann að eiga svona velunnara. Kærar þakkir !
Fastir liðir í skólastarfinu og námi nemenda er að læra grunn í dansi. Við fáum Jón Pétur til okkar tvisvar yfir skólaárið sem er ómetanlegt. Að þessu sinn fór opna æfingin fram í Leikskálum þar sem fjölskyldum nemenda var boðið að koma og fylgjast með og taka þátt í skemmtilegu balli í lokin.
Næstkomandi fimmtudag fáum við til okkar áhugaverðan fyrirlestur fyrir allt skólasamfélagið. Í þessum fyrirlestri fer Einar Örn sjúkraþjálfari yfir mikilvægi hreyfingar og réttrar líkamsbeitingar þegar kemur að líkamlegri heilsu barna og unglinga. Einnig fer hann yfir áhrif orkudrykkjaneyslu á svefn og hversu skaðleg mikil neysla á þessum drykkjum getur verið. Margrét Lára sálfræðingur og íþróttafræðingur […]
Í dag 9. október er árlegur hugleiðsludagur unga fólksins. Nemendur Víkurskóla tóku að sér að vera í forgrunni í myndbandi dagsins og tóku næstum allir nemendur skólans þátt. Við færum aðstandendum dagsins bestu þakkir fyrir frábært samstarf. Hér má sjá myndbandið: Jafnframt er hér slóð inn á heimasíðu verkefnisins: https://www.hugleidsludagur.is/
Drangamix er heiti á þverfaglegu námi sem unnið er í 1.-6. bekk. Við veljum ákveðna þemu sem við vinnum með á fjölbreyttan hátt. Drangamix verkefnin eru mis stór. Þau geta verið allt frá fáeinum tímum upp í nokkrar vikur, eru allskonar og unnin eftir ólíkum leiðum. Fyrsta verkefnið sem við erum að vinna með er […]
Hvatningarverkefnið ,,Göngum í skólann’’ hófst í dag, 6. september. Víkurskóli tekur að sjálfsögðu þátt enda verkefnið hluti af stefnu skólans sem Heilsueflandi skóla. Þessi dagur er að verða hefðbundinn í skólstarfinu. Nemendur og starfsmenn hittust á sal þar sem verkefnið var kynnt og nemendur hvattir til, þeir sem hafa tök á að koma gangandi […]
Nemendur í 1.-6. bekk héldu í dag í vettvangsferð að Hjörleifshöfða sem að var hluti af verkefni sem unnið er að í Drangamixi í Víkurskóla. Þess má geta að nánast allir nemendur hópsins gengu upp að haugnum sem að Hjörleifur landsnámsmaður er talinn grafinn og skein gleði úr hverju andliti. Veðrið lék við okkur og sáu nemendur […]
Nemendur í 1.- 6. bekk í Víkurskóla fóru í útikennslu í Syngjanda. Þar var kveiktur upp í eldstæðinu. Verkefnið var að nota ísmola í ísgerð. Virkilega skemmtilegt verkefni þar sem nemendur bjuggu til sinn eiginn ís og fengu sér svo að sjálfsögðu að smakka. Sjón er sögu ríkari.
Undankeppni fyrir upplestrarkeppnina Röddina var haldin í Víkurskóla föstudaginn 21. apríl. Fjölskyldum keppenda var boðið að koma og stóðu allir keppendur sig með prýði. Leikar fóru þannig að Óliver Ísar og Sigurgeir Máni eru fulltrúar Víkurskóla í lokakeppninni. Andri Berg er varamaður.
Mánudaginn 5. desember fóru nemendur í 9. og 10. bekk í Víkurfjöru í strandmælingar. Þau tóku ljósmyndir í fjörunni, tóku loftmyndir með dróna og mældu hvert snið í fjörunni. Þetta er í fyrsta skipti sem mælingar af þessari gerð hafa verið gerðar á Íslandi. Því mætti segja að Víkurskóli, ásamt Kötlu jarðvangi, sé að ryðja […]
Heimilsfang: Mánabraut 3 | Pósthúmer: 870 Vík | Símanúmar: 487 1242 | Netfang: vikurskoli@vikurskoli.is
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 487-1242 eða á netfangið vikurskoli@vikurskoli.is
