Listatími hjá 1. bekk og verðandi 1. bekkingum.
Listatími hjá 1. bekk og verðandi 1. bekkingum. Viðfangsefnið er sol og skuggar. Grunnformin og bjartir litir. Ungu listamennirnir nutu sín í goða veðrinu.
This author has yet to write their bio.Meanwhile lets just say that we are proud Vikurskoli contributed a whooping 165 entries.
Listatími hjá 1. bekk og verðandi 1. bekkingum. Viðfangsefnið er sol og skuggar. Grunnformin og bjartir litir. Ungu listamennirnir nutu sín í goða veðrinu.
Í vorblíðunni nýtum við hvert tækifæri til að fara með börnin út í náttúruna og nærumhverfið. Hér eru myndir frá nemendum í 1.-2. bekk sem fóru í Víkurfjöru og útbjuggu listaverk úr efnivið sem þau fundu í fjörunni. Útkoman var glæsileg og undu nemendur sér vel og unnu sérstaklega vel saman.
Héraðskeppni Stóru-upplestrarkeppninnar fór fram á Hvolsvelli 27. apríl sl. Að þessu sinni var keppnin með öðru sniði vegna sóttvarnareglna. Engir gestir gátu sótt keppnina og heildarfjöldi í sal var einungis 20 manns. Keppendur Víkurskóla voru þeir Guðjón Örn Guðmundsson og Johan Olof Ísólfur Karlsson nemendur í 7. bekk. Þeir stóðu sig með sóma. Hér fylgja […]
Það var gleði og gaman hjá nemendum í stærðfræðifjöri í dag þegar þau fengu það verkefni að hanna sandkastala í fjörunni í sól og fallegu veðri. Það er kúnst að móta listaverk úr sandi og þarf oft mikla útsjónarsemi og samvinnu til að ákveða hvernig eigi að skapa listaverkið. Öll leystu þau verkefnið framúrskarandi vel […]
Hún Hafdís Hanna nemandi í 3. bekk var svo heppin að vera dregin út í eldvarnargetraun Eldvarnaátaks 2020 hjá Landssambandi slökkviliða. Hún fékk að launum heimsókn í skólann frá slökkviliði Mýrdalshrepps og jafnframt viðurkenningaskjal og gjafabréf hjá spilavinum upp á 10.000,-. Til hamingju Hafdís Hanna!
Þriðjudaginn 9. febrúar skelltum við okkur á skíði í Bláfjöll með nemendur í 7.-10. bekk. Veðrið lék við okkur og nemendur og starfsmenn skemmtu sér konunglega og áttu góðan dag saman. Á heimleið stoppuðum við á Skalla á Selfossi og borðuðum saman. Frábær dagur í alla staði og við erum strax farin að hlakka til […]
Árlegt þorrablót fór fram í dag. Blótið er einn af föstum liðum skólastarfsins og haldið er fast í hefðir á þessum degi. Nemendur 10. bekkjar tóku að sér að leggja á borð fyrir blótið og gerðu það með glæsibrag. Þegar allir höfðu fengið sér góðan skammt af þorramat þá var flutt dagskrá á sal. Nemendur […]
Katla jarðvangur og Víkurskóli, í samstarfi við Kötlusetur í Vík, hófu rannsóknarverkefni fyrir nemendur í Víkurskóla þann 12. janúar 2021. Verkefnið gengur út á að rannsaka strandlínu- og fjörubreytingar í Víkurfjöru á næstu árum. Verkefnið felur í sér að nemendur í 5.-10. bekk mæla upp 6 snið í Víkurfjöru ásamt því að mæla kornastærðirnar á […]
Það ríkir oft mikil gleði og áhugi í stærðfræðifjöri hjá 3. – 7. bekk enda verið að vinna að skapandi verkefnum í stærðfræði á fjölbreytilegan hátt. Síðasta viðfangsefni krakkanna var að hanna og skapa bát sem gæti siglt niður Víkuránna . Í verkefninu reyndi á útsjónasemi, samvinnu og ígrundun og var hver báturinn á fætur […]
Vegna nýrrar reglugerðar heilbrigðisráðuneytisins um takmörkun á skólastarfi vegna Covid 19 þá er Víkurskóli lokaður fyrir gestakomur frá og með 3. nóvember til og með 17. nóvember n.k. Þeir sem eiga bókað viðtal eða hafa látið vita af komu sinni eru beðnir um að vera með andlitsgrímu. Aðgerðir Víkurskóla til að uppfylla tilmæli reglugerðarinnar verða sendar til foreldra/forráðamanna […]
Heimilsfang: Mánabraut 3 | Pósthúmer: 870 Vík | Símanúmar: 487 1242 | Netfang: vikurskoli@vikurskoli.is
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 487-1242 eða á netfangið vikurskoli@vikurskoli.is
