Listakotið
Í haust voru gerðar miklar lagfæringar. Nú er óðum að komast skapandi og notalegur blær á allt. Unga listafólkið er niðursokkið í margs konar listsköpun. Þroskandi og gefandi.
This author has yet to write their bio.Meanwhile lets just say that we are proud Vikurskoli contributed a whooping 165 entries.
Í haust voru gerðar miklar lagfæringar. Nú er óðum að komast skapandi og notalegur blær á allt. Unga listafólkið er niðursokkið í margs konar listsköpun. Þroskandi og gefandi.
Í haust fengum við góða gjöf frá einum af velunnurum skólans honum Þóri Kjartanssyni. Hann færði okkur eintak af heimildarmynd sem hann hefur gert um eldstöðina Kötlu. Það fór vel á því að fá Þóri í heimsókn í dag til að kynna myndina fyrir frumsýningu og hvað það var sem dreif hann áfram við að […]
Í tilefni af Bleika deginum í dag 16. október lögðu nemendur og kennarar í Víkurskóla sig fram um að klæðast einhverju bleiku eða koma með bleika fylgihluti. Bleiki dagurinn er okkur hvatning til að sýna stuðning við þá sem greinast með krabbamein og aðstandendur þeirra. Hér má sjá nemendur og kennara í 1.-2. bekk í […]
Nemendur unglingadeildar hafa seinustu vikurnar verið að læra um lífverur í náttúrufræðinni og einn liður í þeirri kennslu er að læra að kryfja fisk. Markmiðið með verkefninu er að nemendur fái að skoða lífveru úr íslenskri náttúrú nánar; ræða uppbyggingu lífveru og líffærafræði, hvernig útlit og líkamsbyggingu spegla lifnaðarhættir auk þess sem tilgangurinn er að […]
Einn af föstum liðum í skólastarfinu er að allir nemendur og starfsmenn taka þátt í Ólympíuhlaupi ÍSÍ. Að þessu sinni varð 9. október fyrir valinu og má með sanni segja að þetta hafi verið einn af dásamlegustu og veðurblíðustu dögum haustsins. Krakkarnir stóðu sig afskaplega vel. Þau gátu valið á milli þriggja vegalengda í hlaupinu, […]
Nemendur í útivistarvali á unglingastigi hafa í haust tekist á við ýmsar áskoranir eins og að klífa fjöll, kveikja eld og grilla pylsur í hagléli. Jafnframt hafa krakkarnir fræðst um ýmislegt sem tengist því að stunda útivist. Við búum svo vel í nærumhverfi Víkurskóla að hafa aðgang að fallegum gönguleiðum og stöðum til að skoða. […]
Reglulega hittast nemendur þvert á aldur og námshópa og vinna skapandi verkefni í stærðfræði. Hér gefur að líta myndir frá síðasta stærðfræðifjöri. Fleiri myndir
Á degi íslenskrar náttúru fóru nemendur, 1. og 2. bekkjar og gerðu náttúrulistaverk í Víkurfjöru. Á leiðinni fræddust nemendur um haustið, örnefni og það sem fyrir augu bar á leiðinni, síðan vöru sköpuð mismunandi listaverk, allt eftir innblæstri nemenda. Þau söktu sér í listsköpunina. Þegar heim var komið töluðum við um Ómar Ragnarsson, sem dagurinn […]
Nemendur í 8.-9. bekk læra þessa dagana undir stjórn Möggu Steinu samfélagsfræðikennara þeirra um steintegundir á Íslandi og jarðvætti í Kötlu jarðvangi. Liður í þessari fræðslu var heimsókn í fræðasetrið okkar Kötlusetur þar sem Vala og Jóhannes tóku á móti krökkunum og þau fengu verklega fræðslu í að greina steintegundir. Fleiri myndir
Síðastliðinn mánudag fengum við góða gesti í skólann gegnum verkefnið List fyrir alla. Það voru þau Herdís Anna Jónsdóttir víóluleikari og Steef van Oosterhout slagverksleikari, hljóðfæraleikarar úr Sinfóníuhljómsveit Íslands sem kalla sig Dúó Stemmu. Þau spiluðu, sungu og léku á ýmis hljóðfæri, hefðbundin og heimatilbúin m.a. hrossakjálka, skyrdós og sandpappír. Sannarlega tónleikhús með fullt af […]
Heimilsfang: Mánabraut 3 | Pósthúmer: 870 Vík | Símanúmar: 487 1242 | Netfang: vikurskoli@vikurskoli.is
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 487-1242 eða á netfangið vikurskoli@vikurskoli.is
